Fálkinn - 28.02.1966, Page 5
Haukur Morthens og Louis Armstrong,
en þeir syngja allir hver sinn texta við
lagið kamalkunna, Hello Dolly. En
hvort ég næ röddum þessara ágætu
söngvara er önnur saga, en syrpan
heitir Halló Dagný.
í eina tíð söng ég í útvarpið lagið
Hott hott á hesti. Hér er lagið komið
aftur örlítið breytt.
Halló mamma er símtal, en í því hef-
ur hinn dæmigerði reykvíski gæi orðið.
Hann hefur lent í klandri með bílinn
og er að lýsa því fyrir föður sínum.
Unga fólkið kannast við Twist and
sliout, lagið, sem Beatles gerðu frægt.
Fyrst, þegar ég heyrði plötuna, þá
fannst mér þeir syngja þetta óeðlilega
hátt og var eiginlega búinn að mynda
mér þá skoðun, að þeir heyrðu svona
illa hver til annars. Út frá þessari hug-
mynd samdi ég textann. Þar eru tveir
heyrnarsljóir karlar að talast við. Báð-
ir þykjast heyra í hvor öðrum, en heyra
reyndar ekki neitt, svo að útkoman
verður dálítið spaugileg.
Eitt atriðanna á plötunni verður í
óbundnu máli, en það er hin gamal-
kunna skíðalýsing, sem mig hefur lengi
langað að gefa út á hljómplötu.
Sum laganna munu að öllum líkind-
um koma dálítið snöggt við hið annál-
aða hlutleysi útvarpsins. en bað er svo
lítill hluti af heildarlagafjöldanum, að
það gerir hvorki til né frá.
Það hafa margir fært það í tal við
mig, hvort að ég ætli ekki að gefa út
bók með þeim gamanvísum, sem hvað
mesta lukku hafa gert. Ég hafði ekki
áhuga á því, heldur vildi ég koma
þessu á framfæri eins og það var flutt
í byrjun og þar var hljómplatan bezti
miðlarinn. Með útgáfu þessarar plötu
er ekki farið út í neitt stórgróðafyrir-
tæki, heldur er þeim, sem hafa ánægju
af svona skemmtiefni gefinn kostur á
að hlýða á það heima í stofu hjá sér af
hæggengri hljómplötu.
Ómar túlkar raunir unga mannsins: Á
leið heim — hik — eftir ógurlegt geim
— hik — á leið heim.
Nemendur Verzlunarskólans, Ómar og
hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar í
Útvarpssal. — Ljósm.: G. R. FÁLKINN.
5
FALKINN