Fálkinn - 28.02.1966, Page 19
„I GUÐS BÆNUM HAFÐU ÞETTA STUTT . . .
FALKINN
HRINGDI
ÁELLUI
LONDON
FYRIR nokkrum dögum fréttum
við, að Ella Fitzgerald kæmi til
London, laugardaginn 12. febrúar,
til tónleikahalds ásamt hinni stóru
hljómsveit Duke Ellington. Tónleik-
ar þessir, sem haldnir voru í Royal
Festival Hall í London, voru á marg-
an hátt óvanalegir, m. a. vegna þess
að Ella og Duke hafa ekki unnið
saman á tónleikum áður, svo að vit-
að sé.
Okkur hér við Fálkann datt í hug
að reyna að ná í Norman Granz og
Ellu Fitzgerald í símann, áður en
tónleikarnir með Duke Ellington
hæfust í Royal Festival Hall, og
áður en varði vorum við komin með
Granz í símann:
— Hvernig hefur Evrópuferðin
gengið?
— Mjög vel. Við vorum í Kaup-
mannahöfn í vikunni, en í dag eru
fyrstu hljómleikarnir með Duke Ell-
ington hér í London. Réttara sagt
eru tónleikarnir byrjaðir, og Ella
byrjar að syngja eftir 15 mínútur.
— Komið þið hingað til Reykja-
víkur beint frá London?
— Nei, það er nú öðru nær. Héðan
fer Ella til Brussel, þann tuttugasta,
til að koma fram í sjónvarpsþætti.
Þann 23. febrúar fer hún svo til
Madrid, og þann 25. kemur hún loks
til Reykjavíkur.
— Hvað verður um Tommy Flana-
gan, undirleikara Ellu?
— Flanagan er í New York. Það
kom ekkert fyrir hann. Ella skipt-
ir um undirleikara á eins til tveggja
ára fresti.
— Hvaða menn leika í tríói
Jimmy Jones?
— Jimmy Jones leikur á píanó.
Hann lék og útsetti fyrrum fyrir
Söru Vaughan o. fl. Gus Johnson,
trommuleikari. Gus er nýlega hættur
með Count Basie hljómsveitinni.
Joe Comfort bassaleikari. Comfort -
lék í mörg ár með Nat King Cole.
Augnablik hér kemur Ella ...
— Já, í guðanna bænum hafðu
þetta stutt viðtal. Þetta eru fyrstu
tónleikarnir hér í London og ég er
dálítið taugaóstyrk. Ég á að fara að
syngja eftir tíu mínútur. Nei níu
mínútur.
— Hvernig hafa tónleikarnir
gengið?
— Þetta hefur allt gengið framar
öllum vonum. Það er nú líka Duke
Ellington að þakka. Hljómsveitin
hans er alveg dásamleg, enda hefur
fólkið rifið út miðana. Duke spilar
í klukkutíma, svo kem ég og syng í
klukkutíma með hljómsveitinni og
Jimmy Jones, en síðast kemur Duke
aftur fram með okkur.
— Sonur þinn leikur á hljóðfæri,
ekki satt?
— Ray leikur á trö'mmur með
,,Ringo-beat“ hljómsveit í skólanum.
— Hvernig líkar þér hljómlist
hans?
— Hvað í ósköpunum er hægt að
segja. Hann verður að fá að leika þá
tónlist, sem hann hefur áhuga á. En
hann vex nú bráðum upp úr þessu,
vona ég.
— Þetta verður í fyrsta skipti sem
þú syngur á íslandi?
— Já, í fyrsta skipti. Hvað á ég
að syngja á mörgum hljómleikum?
— Það hafa verið auglýstir fjórir
hljómleikar.
— Ég vona bara að það fái allir
aðgöngumiða, sem vilja.
— Það vonum við líka ...
— Nú verð ég að hætta. Ég á
alveg að fara að byrja. Ég bið að
heilsa fslandi.
Við fengum kunningja okkar í
Bretlandi til þess að fara á tónleik-
ana og skýra okkur frá þeim hér í
Fálkanum, það var að vísu all erfitt,
þar sem aðgöngumiðar að tónleik-
unum seldust upp á skammri stundu,
en einhvern veginn tókst honum nú
samt að komast inn. Hér er stutt
frásögn af tónleikunum.
,,Royal Festival Hall var þéttsetin
prúðbúnu fólki í dag. Þar komu
fram Duke Ellington og hljómsveit,
Ella Fitzgerald, og tríó Jimmy Jones.
Þetta voru vafalaust skemmtileg-
ustu tónleikar sem haldnir hafa ver-
ið í Festival Hall í vetur.
Fyrri hluta hljómleikanna lék
hljómsveit Duke Ellington, sem kom
á óvart með því að leika töluvert
af lögum, sem þeir félagar hafa ekki
Framh. á bls. 37.
FÁLKINN 19