Fálkinn - 28.02.1966, Qupperneq 20
ÖVEIMJIJLEG
HEIMILISDÝR
„Hundar og kettir eru indælir, en ekkert jafnast á við apa,"
segir enska gamanleikkonan Hilda Baker. „Coco er dásamlegur
félagi, og það er ómögulegt að vera þunglyndur eða lífsleiður í
návist hans. Það var enginn vandi að húsvenja hann, og ég hlæ
svo mikið að öllum hans uppátækjum, að ég gleymi hversdagslegum
áhyggjum."
Hún keypti Coco í heimilisdýraverzlun og tók hann heim með
sér. En hún átti erfitt með að vinna vináttu hans í fyrstu. Þótt
hún byði honum mjólk og súkkulaði og alls konar kræsingar leit
íiann ekki við henni. Á endanum ákvað hún að gjalda líku líkt
og virða hann heldur ekki viðtals. Það blessaðist ágætlega. Eftir
svolitla stund kom hann og gægðist forvitnislega yfir öxlina á
henni áblaðið sem hún var að lesa. Og brátt urðu þau beztu félagar.
Hann hefur meira að segja komið fram á sviði með Hildu, eins og
flestir leikarar kann hann því vel að vaka fram eftir á kvöldin og
sofa út á morgnana.
Albertine Castelli í Nýju Orleans, Bandaríkjunum hefur meiri
mætur á dýrunum sínum en mönnum. Hún á níu hunda, þrjá apa,
tvo ketti, átta kanarifugla, seytján páfagauka... og krókódílinn
Sam sem þið sjáið hér á myndinni. Hann býr í kjallaranum og
fælir burt allar rottur — og ef til vill fleiri gesti.
Asninn Pedro er mikill vinur húsmóður sinnar, Nolu Boyer í
Indianapolis. Það er verst hvað hann er drykkfelldur...
20
FÁLKINN