Fálkinn - 28.02.1966, Blaðsíða 26
verið að byggja Hótel Borg og
þar vantaði þjóna. Jónas Lárus-
son fyrrverandi bryti á Gull-
fossi var ráðinn yfirmaður í
veitingasölum en Petersen sem
verið hafði yfirþjónn á sama
skipi, skyldi vera yfirþjónn á
Borg. Hann sagði Pétri að koma
á Borgina. Fyrst þyrfti hann
að sigla til Kaupmannahafnar
vera þar um tíma á hóteli til
þess að kynna sér vinnuna á
landi. Þetta varð. Pétur sigldi
til Kaupmannahafnar, komst
að sem ungþjónn á mjög góð-
um veitingastað. Hann sigldi
til íslands aftur, með Gullfossi.
Þeir komu til Reykjavíkur á
Þorláksmessu 1929. Pétur fór
til æskustöðvanna og var jólin
heima, — síðustu jólin í for-
eldrahúsum. Eftir áramótin fór
hann aftur suður, og enn var
mikill snjór á fjallinu líkt og
forðum.
Þeir voru átta þjónarnir sem
hófu störf á Hótel Borg 10.
janúar 1930. Þeir hófu starfið
með því að taka upp borðbún-
að, hreinsa málningarslettur og
taka til í veitingasölunum.
Fyrsta veizlan var samkoma
Nýársklúbbsins, sem að þessu
sinni frestaði áramótafagnaði
sínum til 18. janúar.
Opnun Hótel Borgar var
mikill viðburður í Reykjavík.
Dönsk hljómsveit lék fyrir
dansi og hér var í fyrsta sinn
hægt að koma saman í veitinga-
sal þar sem allt var sambæri-
legt við beztu staði í nágranna-
löndunum.
Daginn eftir var svo gestum
boðið að skoða húsið en um
kaffileytið voru veitingasalirn-
ir opnaðir almenningi. Úti fyr-
ir beið mikill fólksfjöldi. Svip-
aður fjöldi eins og venjulega
hlýddi á hornamúsík á Austur-
veili. Svo um sumarið var
Alþingishátíðin haldin að Þing-
völlum, en margar veizlur voru
haldnar á Borginni og þar
bjuggu margir tignir gestir.
Kreppuárin gengu yfir og
flest drógst saman. Þetta kom
líka við veitingahúsin og gisti-
húsin, en þó kom fólk á Borg-
ina, fékk sér kaffibolla eða vín-
glas, hlustaði á músík, dansaði
og skemmti sér.
Pétur var þjónn á Borginni
samfleytt til 1942. Þá frétti
hann hjá kunningja sínum að
systurnar á Skjaldbreið, Stein-
unn og Margrét, ætluðu að
selja hótelið. Pétur, sem lengi
hafði langað til að verða eigin
húsbóndi, fékk mikinn áhuga
á fyrirtækinu. Hann safnaði
saman nokkrum mönnum og
þeir stofnuðu hlutafélag. Síðan
var Skjaldbreið keypt og Pétur
GO I PPAGH
SKULAGOTU 51, SIMI 23570
Hóte! Borg
Framh. af bls. 7.
eftir loforði sínu við Pétur og
sendi eftir honum. Konan sem
var húsráðandi, kom til dyra
er spurt var eftir Pétri. Hún
var hissa á að komumaður
skyldi ekki hafa mætt honum,
því hann hefði verið að ganga
út. En togarinn mátti ekki
stanza lengur en nauðsynlegt
var og margir um plássið.
Annar maður fór því á skipið.
Auðvelt er að gera sér í hugar-
lund vonbrigði Péturs, er hann
kom heim um kvöldið og frétti
hvað fram hefði farið.
Nokkru seinna kom Brúar-
foss til Reykjavíkur. Þar vant-
aði þjón á annað pláss og þar
sem brytinn vissi að Pétur var
vanur eftir veru sína á Gull-
fossi, var honum boðin staðan.
Hann tók vinnuna, þótt hún
væri vitanlega ver borguð en
togaraplássin. Hann hafði siglt
þarna nokkrar ferðir, er svo
hittist á að Jón forseti var
einnig staddur í Reykjavík.
Jóhann Jóhannsson, sá sem
sendur var eftir Pétri inn á
Lindargötu kvöldið góða, kom
um borð í Brúarfoss til þess að
hitta hann. Þeir spjölluðu lengi
saman og að skilnaði gaf Pétur
honum aðra vínflöskuna af
tollskammtinum. Jóhann sagði
að skilnaði að það væri efalaust
betra fyrir Pétur að vera kyrr-
an í þessu starfi, en að fara á
Jón forseta. Þetta væri betra
starf heldur en að vera á tog-
ara.
Þetta var í síðasta skipti sem
þeir sáust, vinirnir. Jón forseti
lagði út um kvöldið. Hann
fórst í þeirri ferð og Jóhann
Jóhannsson með honum.
Pétur var nú áfram á Brúar-
fossi þar til árið 1929. Þá var
26
var þar með orðinn hótelstjóri
og eigandi að einum fimmta.
Pétur rak Skjaldbreið í 18
ár. Hann tók auk þess stúdentá-
garðana á leigu og rak þar
sumargistihús í tíu sumur. Vor-
ið 1944 keypti hann ásamt fleir-
um Valhöll á Þingvöllum og
endurskipulagði þar gisti- og
veitingarekstur.
— Það var svo árið 1958 að
bankastjóri í Reykjavík gerði
boð fyrir Pétur og spurði fór-
málalaust hvort hann vildi
kaupa Hótel Borg.
Auðvitað langaði Pétur til
þess, en vissi jafnframt að slíkt
var ekki hrist fram úr erm-
inni sinni. Þeir reyndu að selja
Skjaldbreið og fá út peninga
með því móti, en það reyndist
ekki auðvelt. Þetta gekk í þófi
nokkra hríð, viðræður fram og
aftur. Pétur stofnaði svo ásamt
nokkrum öðrum hlutafélagið
Hótel Borg h.f. og þeir gengu
frá kaupum á hótelinu haustið
1959 og tóku við eigninni 1.
janúar 1960.
Og þar með var Pétur Daní-
elsson orðinn „Boi'garstjóri".
Nýju eigendurnir hófust þeg-
ar handa um endurnýjun og
umbætur, fjölguðu gistiher-
bergjum og gerðu gagngerar
breytingar á öðrum gistiher-
bergjum, anddyri, veitingasöl-
um og vínstúku.
Engin þörf er að lýsa Pétri
á Borg fyrir Reykvíkingum
eldri sem yngri. 'Maðurinn er
þéttur á velli og þéttur í lund.
Hefur löngum haldið sínu striki
stóráfallalaust og getur nú sex-
tugur litið yfir farinn veg með
nokkru stolti. Og líklegast þyk-
ir mér að leið sína til fjár og
frama eigi hann reglusemi og
skyldurækni að þakka öðru
fremur.
• KvennjósnariiHt
Framh. af bls. 11.
karlkynsáhorfendur, þar sem
þeir eru komnir, í nokkrar mik-
ilvægar sekúndur“. En Monica
er ekki sama sinnis. „Þeir geta
skrifað það sem þeim sýnist í
handritin, ég mun aldrei af-
klæðast frammi fyrir mynda-
vélinni, og ég neita að hafa
staðgengil. Ég afklæðist ekki
opinberlega hispurslaus og til-
finningalaus. Ég vil ekki af-
sala mér þeirri geðshræringu,
sem nekt í einrúmi veitir“.
Modesty, hinn algjöri sigur
konunnar á karlmanninum, vef-
ur sígarettur sínar sjálf og
smekkur hennar er andstæður
hinum smámunalega smekk
FALKINN