Stúdentablaðið - 01.05.1998, Page 2
L í I i <)
Stúdentablaðið
H é ð a n o g þ a ð a n
Háskólaútgáfan hefur dafnað feiknavel síð-
ustu misseri. Nú er svo komið að forlagið er
önnur stærsta bókaútgáfa landsins. I’að sem
fúrðu vekur er að yfirbyggingin er hreint
ótrúlega lítil og þarf Háskólaútgáfan aðeins
að selja um 20% af því sem önnur forlög
þurfa að selja til að ná upp í kostnað og er
það því mörgum háskólamönnum
vcruleg kjarabót að gefa út verk sín
hjá útgáfúnni. Maðurinn á bak við
þennan ffábæra árangur er Jörundur
Guðmundsson, útgáfústjóri.
I’að sem er að líta dagsins ljós hjá
Háskólaútgáfúnni þessa dagana er
bókin Af mannanna börnum eftir
mannfræðinginn Hurnld Ólafsson sem
hefúr kennt mannffæði við HÍ í
áraraðir og fjallar bókin um upp- ^ssur
runa mannsins, þróun samfélags- Skarphéðlnsson
gerðar og menningarleg gildi mannfræðinn-
ar. í tilefni af sjötugsafmæli Sigurðar A. Magn-
ússonar, rithöfundar og gullpenna með
meiru, kom út hjá Háskólaútgáfunni vcrkið
í tíma og ótíma sem er safn ritgerða Sigurð-
ar frá 1944-1998. Áhugaverð bók þar sem
skrif Sigurðar þykja leiftra af tilþrifúm og
tæpitunguleysi.
Einkanlega hafa skrif Össurar um tengsl ís-
lendinga við Grænland vakið athygli og mik-
ilvægi þeirra fyrir sögu og sjálfsmynd þjóðar-
innar. Össur hefúr þar vakið verðskuldaða at-
hygli á þessum vanrækta þætti íslandssög-
unnar. Spekúlantar í pólitíkinni bíða svo
spenntir eftir því að sjá hvort Össur hyggist
ná formennsku í Alþýðuflokknum
og klára sameiningarmálin en flestir
eru á því að Össur eigi góða mögu-
leika á formannsembættinu ef hann
sæktist effir því á annað borð. En
Össur er maður margra verka og
ffæðimaðurinn blundar alltaf í hon-
um. Hann hélt rómaðan fyrirlestur á
dögunum sem bar heitið Ógnir við
undirdjúpin í fyrirlestraröðinni
Undur hafsins í Háskólabíói á dög-
unum. I’ar reifaði Össur hvað helst
ógni lífríkinu og hvernig helst megi
sporna við frekari spillingu þess. Snjall pistill
hjá ritstjóranum.
Eins og kunnugt er tók Ás-
dis Magnúsdóttir við for-
mennsku í Stúdentaráði á
dögunum af Haraldi G. Eiðs-
syni. Á sama tíma skipti
Vaka um oddvita og lét
Björgvin Guðmundsson af því
embætti og við tók Kristín
Pétursdóttir.
Kristín Pétursúónir ^ Jón Kristinn
Snæhólm sjálfstæðismaður og Róbert
Marshall gróskumaður hafa síðustu
vikur tekist á af miklum kraffi á öld-
um ljósvakans. Þeir félagar mætast
vikulega á fimmtudagsmorgnum á
Aðalstöðinni og kljást af kraffi um
pólitík líðandi stundar. Einvígi
þeirra félaga hafa vakið mikla athygli
enda ekki verið að spara stóryrðin
og hafa áhugamenn um stjórnmál
gaman af rökræðum þeirra félaga.
í byrjun maí stendur til að opna Iðnó á ný,
betrumbætt og glæsilegt húsnæði og til
stendur að hafa þar kraftmikla listadagskrá
og veitingahús eins og þau gerast best. Iðn-
aðarmenn reistu húsið af vanefnum en mikl-
um dugnaði og hreint ótrúlegum metnaði á
sínum tíma og er húsið hreint og klárt lista-
verk. Endurgerðin nú ber íslenskum iðnað-
armönnum fagurt vitni og þykir handverkið
með hreinum ólíkindum fallegt. Prímusmót-
orar hins nýja Iðnó eru Sæmundur Norðfjörð,
þúsundþjalasmiður og auglýsinga-
safnari Stúdentablaðsins, Magnús Geir
Þórðarson og Stefón Hjörleifsson bassa-
leikari, en hann er nýráðinn fram-
kvæmdastjóri hins flugmikla fyrirtæk-
is. Þeir félagar æda sér stóra
hluti með Iðnó á komandi
misserum og er nokkuð víst
að þeir félagar láti mikið að
sér kveða enda athafnaskáld
mikil á ferðinni. í tílefni af
vígslunni á að vera með
glæsilega dagskrá upp úr verkum
Halldórs Laxness en allt um það í blaði
sem þeir félagar senda frá sér í byrj-
un maí.
angri að koma liðinu upp í fyrstu deild og
hefúr heyrst úr herbúðum Þróttar
að mikilla sigra sé að
vænta á sumri komanda.
Vilhjálmur hefúr tekið þá
ákvörðun að spila annað
leiktímabil með Þrótti og
þá er ekkert annað að
gera en að flykkjast á völl-
inn og hvetja liðið til
dáða. Auk þess að þjálfa
fótbolta og lesa lög hefúr
Vilhjálmur tekið til við að
nema saxafónleik og æfir
sókn
Sœmundur Norðtjörð
nú af miklum þrótti og er haft á orði að þess
sé ekki langt að bíða að hann hasli sér völl á
vettvangi tónlistarinnar.
Vllhjálmur
Vilhjálmsson
Róbert Marshall
Velgengni DV hefúr að sögn aukist til muna
á þeim mánuðum sem liðnir eru frá því að
Össur Skarphéðinsson settist þar í ritstjórastól.
Knattspyrnuaðdáendum eru enn í
fersku minni tilþrif fyrrum formanns Stúd-
entaráðs, Vilhjólms H. Vilhjólmssonar, á vellinum
í fyrrasumar með hinum sigursæla Þrótti.
Vilhjálmur og félagar náðu þeim glæsta ár-
Einn af efnilegri leikurum ungu kynslóðar-
innar er Ólafur Darri Ólafsson en hann vakti
mikla athygli um páskana þegar hann hóf
sýningar á leikriti í strætisvagni. Það er verk-
ið Nóttin fyrir skógana og mun Ólafúr Darri
ætía að sýna fram eftir vori eða á meðan að-
er að sýningunni. Ólafúr Darri er
einnig einn af aðstandendum Nem-
endaleikhússins sem frumsýndi nú
nýverið leikritið Uppstoppaður
hundur en nánar er fjallað um það
annars staðar í blaðinu.
Hjólmar Blöndal,
forseti MH, fór
mikinn vegna
Gettu betur máls-
ins. Hjálmari
þótti dómgæsla
þáttanna fyrir
neðan allar hellur og vildi
láta rifta úrslitunum.
Hjálmar skaut föstum
skotum í allar áttir og vakti
mikla athygli á málinu. HJálmar Blöndal
Annars er það að ffétta af Hjálmari að hann
hyggur á háskólanám og ffekari boðskap
hægristjórnmálanna en hann þykir með
vígfimari mönnum í ungliðakreðsu Sjálf-
stæðisflokksins.
Yrki á meðan
aðrir sofa
Sigurbjörg Þrastardóttir sigraði Ijóðasam-
keppni Stúdentablaðsins og Torfhildar.
Hún átti prjú Ijóð á meðal tíu efstu og par af
vinningsljóðið. Sigurbjörg er að Ijúka námi í
hagnýtri fjölmiðlun en hefúr auk pess lokið
BA- prófi í bókmenntafrœði. Hún heldur nú
til starfa á Morgunblaðinu ásamt pví að
stunda Ijóðlistina.
„Eg hef ort síðan ég man eftir mér og ver-
ið nokkurs konar hirðskáld fjölskyldunnar í
gegnum árin en nú hef ég ort til allra í kring-
um mig þannig að ég held að ég hætti því
nú.“
Ætlar pú að halda áfram að yrkja og koma
kveðskapnum út á bók?
,Já, það gerist ósjálfrátt að ég yrki. Það
væri ekki leiðinlegt að koma honum út á
bók. Ég á handritið en skortir djörfung og
hug til að koma því á framfæri. En ég hvet
útgefendur til að hringja í mig.“
Hvað tekur við pegar námi sleppir?
„Ég ætla að vinna allavega í eitt ár en svo
getur verið að ég haldi áfram að læra. Jafn-
vel eitthvað sem tengist fjölmiðlum 0g bók-
menntum. Ég verð á Mogganum næstu þijá
mánuði en eftir það sé ég til.“
Hvencer yrkirðu helst og hvaða formi hrífstu
helst að?
„Ég yrki helst þegar aðrir sofa eða þegar
ég á að vera að lesa undir próf og gera eitt-
hvað allt annað. Mér er nokk sama um form-
ið. Þegar ég var yngri skildi ég ekki að
nokkur gæti verið að yrkja þessi atómljóð en
síðar sá ég að innihaldið skipti öllu en ekki
formið."
Hvert er uppáhaldsljóðskáldið?
„Það er erfitt að nefna einn en mér þykir
alltaf vænt um Davíð Stefánsson og það eru
margir góðir af þessum gömlu. Aðrir sem
ég gæti nefnt eru Snorri Hjartarson og Jón
Stefánsson sem kenndi mér hér áður fyrr.
Einnig er Gyrðir EHasson afburðaskáld.“
En af sagnaskáldunum?
„Það er Halldór Laxness, punktur."
Hvað með pá sem nú lifa?
„Þá get ég nefnt Einar Má og Gyrði Elías-
son en sögurnar hans eru hálfgerð ljóð.“
bgs