Eintak - 01.04.1969, Page 3

Eintak - 01.04.1969, Page 3
Ritnefnd: Asrún Kristjánsdóttir Hallmundur Kristinsson Ingiberg Magnússon SigurÖur Örlygsson Abm. Björn Th. Björnsson Forsíða: Þórður Hall Myndskr eytingar: Halldóra Halldórsdóttir Helgi Gíslason Örn Þorsteinsson Asrún Kristjánsdóttir Blað nemendafólags Myndlista- og handíðaskóla Islands I. tbl. I. árg. apríl 1969 ÁVARP Að íslenzkum sið hefur útgáfa þessa blaðs dregist allmjög, jafnvel lengur en búizt var við. Þegar það nú birtist augum lesenda sinna ber það þess vissulega merki að vera í flýti gjört, en við biðjumst ekki afsökunar á neinu, heldur komum til dyranna í þeim klæðum sem við erum vönust og fara okkur bezt. Þessu blaði er ekki ætlað að vera málgagn fárra útvaldra né heppi- legra skoðana, heldur allra þeirra, sem telja sig eitthvað hafa að segja, sem öðrum kemur betur að vita. Upphaflega var áætlað að blaðið yrði 24 síð- ur, en vegna ritgleði manna urðum við að stækka það upp í 28 síður. Tillögu þá að nafni blaðsins, sem fyrir valinu varð, átti Jón Þ. Kristjánsson. Við væntum þess, að þessi tilraun til blaða- útgáfu I Myndlista- og handíðaskóla Islands hljóti það góðar viðtökur að áframhald geti orðið á slíku starfi. Við, þökkum öllum þeim sem hafa veitt blaðinu stuðning, sér I lagi velgerðarmanni, sem ekki vill láta nafns síns getið, rausnarlega fjárhagsaðstoð. Ritnefnd.

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/355

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.