Eintak - 01.04.1969, Qupperneq 6

Eintak - 01.04.1969, Qupperneq 6
SEX Það er varla við því að búast að almenningur beri gott skynbragð á myndlist á meðan fjölmiðlunartækin gera það ekki. Kröfurnar eru ekki miklar. Hvaða hálfviti sem er getur fengið sér liti og pensla, sýnt tómstundadunur sitt og veskú - sjónvarpsmenn koma á staðinn með pomp og pragt. Næsta kvöld birtist svo óskapnaðurinn á sjón- varpsskermum í flestum stássstofum landsins. Sjónvarpið afsakar sig með því að enginn sé fær um að dæma hvað sé slæm myndlist og því sé rétt að sýna allt. Vitanlega getur eng- inn dæmt með óskeikulli fullvissu um hvað sé hæft til að birtast í sjónvarpi og hvað ekki, en það afsakar ekki alla platmálarana, sem öðru hvoru glotta til manns í fréttum sjónvarpsins. Hræddur er ég um að tónlistarunnendur yrðu brúnaþungir ef allir þeir, sem gutlað geta Gamla Nóa með einum putta fengju að halda konsert í sjónvarpssal. Dagblöðin geta tæplega talist neinir myndlistarunnendur. Tíminn eyðir forsíðum sínum í viðtöl við gerfimálara. Alþýðublaðið hafði fyrir skömmu viðtal við tvo unga myndlistarmenn og var það viðtal áreiðanlega engum til sóma. Þjóðviljinn er eiginilega hættur að minnast á myndlist, en fyrir nokkrum árum var hann mjög lifandi blað í garð myndlistar. Vísir og Morgunblaðið eru einu blöðin, sem halda uppi fastri myndlistargagnrýni - þökk sé þeim fyrir það. En því miður, Morgunblaðið sýnir myndlist hroðalega óvirðingu með sýningarglugga sfnum í Aðalstræti. Forráðamenn gluggans eru ótiú- lega snjallir að þefa uppi mestu pensilfúskara, sem til eru á land- inu, og sýna verk þeirra. Morgunblaðsglugginn getur gert mynd- list í landinu meira illt en menn gera sér grein fyrir. Morgun- blaðið er stærsta dagblað landsins og málgagn stærsta stjórnmála- flokksins. Það er þvf ekki ólfklegt að hrekklausar sálir, sem leið eiga um miðborgina, taki alvarlega ófögnuðinn, sem Morgunblaðs- glugginn hefur upp á að bjóða og getur harxi þannig stórsLaðað lista- smekk þjóðarinnar. Sýningarsalir borgarinnar eru því miður að meira leyti reknir af gróðasjónarmiði en menningarsjónarmiði að undanteknu Unuhúsi sem oftast er með ágætissýningar. Hliðskjálf er heldur ekki sem verst, þræðir einhvern milliveg.

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/355

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.