Eintak - 01.04.1969, Blaðsíða 16

Eintak - 01.04.1969, Blaðsíða 16
16 Hraði. Hlátrar. Samtöl á götuhornum, um ekkert. Maður sem lyftir hatti. Kona sem hnykkir til höfðinu með þrautþjálfaðri hreyfingu og brosir svo sér í endajaxla. Fólk á gangstétt. Sólskin. Skuggar. Iðandi hreyfing, stjórnlaus og sambandslaus. óviðkomandi hlutir sem safnast og dreyfast. Hverfa. En þó órjúfanlega samtengdir af einhverju. Líf. Borg. Niðri á götunni er for sem eitt sinn hefur verið hvítur snjór, en er orðinn að vatni og hefur blandast ryki götunnar. Stúlka talar án afláts og hlær. Hlátur hennar er lettur, ahyggju- laus, fjörlegur. Piltur gengur þegjandi við hlið hennar. Kannski er hann að hugsa um mennina sem einhverntíma lögðu þessar gangstétt- arhellur. Um sigggrónar hendur þeirra sem erfiðuðu, svo þau gætu gengið í hreinum skóm, pússuðum með innfluttum skóáburði, þrátt fyrir aurinn á götunni. - Förum í bíó, segir stúlkan. - Förum heldur í leikhús, segir pilturinn. Brúðuleikhús. A leiðinni tekur hann eftir þvx að skuggi styttunnar bendir í norður, eins og fingur sem vísar leið en enginn annar virðist veita þvf athygli, að minnsta kosti fer enginn eftir því. Kannski fara menn á íslandi ekki í norður.

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/355

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.