Eintak - 01.04.1969, Page 24

Eintak - 01.04.1969, Page 24
klæöi sem hún rétti honum um leið og hún struns- aöi aftur fram í eldhúsið með þeim rassaköstum sem sífellt fylgdu öllum hennar hreyfingum. Jón Jónsson þurrkaði sér ná- kvæmnislega framan í og um hendurnar. - Helvízkar, sagði hann eins og niðurstöðu hugsana sinna. - Hvað ertu að segja, kallaði frúin framan úr eldhúsinu. - O-ekkert svaraði bóndinn með hægð og lallaði sér fram til konu sinnar að drekka kaffisopann sinn. - Komstu ekki með mjólkina úr fjósinu? spurði konan. - Æi-nei ég gleymdi henni, svaraði maðurinn. - Það er engin mjólk inni, sagði konan. - Nei, sagði maðurinn. - Ætlarðu ekki að sækja hana? spurði konan. Maðurinn drattaðist þegjandi á fætur og gekk út. Konan tautaði eitthvað á eftir honum en hann heyrði ekki hvað hún sagði og hugsaði ekki um það frekar. Heldur gekk í rólegheitunum út í fjósið og sótti mjólkina. hallmundur. JÁTNING Æ Æ 0 ég elska þig ég elska þig elskar þú mig ég skal gefa þér blóm ég skal gefa þér blóm fyrir tíkall ef þú lánar mér fimmkall s.

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/355

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.