Draupnir - 01.05.1905, Síða 48
40-1
DRAUPNIR.
sína la iimm hundruð hundraða, þrjú í jörð-
um, en tvö í lausate; svo ekkert fátæktar-
mark var á ráðahagnum.
Vér sleppum hér að minnast á öll þau
minni, sem drulckin voru í ríkulegum mæli,
en þessi voru þau helztu: Brúðarminni,
brúðgumaminni, skál fyrir miðju borði, sem
allir áttu hlutdeild í, Heilagsanda-minni,
Krists-minni, sankli Maríu-minni og ótölu-
lega mörg önnur; fyrir sumum þeirra voru
sungnar visur og kvæði, sem komu í staðinn
fyrir ræðuhöldin nú á dögum. Svo voru þau
í og með og Gottskálk biskup fékk sinn
ríkulega skerl' af þeim, og svo hinir aðrir
tignu menn, sem sálu að boði þessu.
Eftir að aðalveizluhaldinu var lokið hinn
fyrsta dag, hópuðu hinar heldri konur sig
saman á bekkina umliveríis í stofunni og
ræddu sín í millum og höfðu fyrir umtals-
efni djásn það hið mikla gullroðna, sem lög-
maður hafði geíið brúði sinni að bekkjar-
gjöf; enginn hafði þá séð annað þvílíkt, og
brutu þær lengi heila sinn yfir því, hvarþað
hefði verið smíðað. En þó Gottskálk biskup
væri auðugur og sparaði ekkert lil að skreyta
dóttur sína, tók hún mörgum hinna lieldri
kvenna ekkert fram í skrauti að meninu frá-
skildu, því þær voru svo vel búnar sem
frekast var kostur á, liöfðu þríbrotin talna-