Draupnir - 01.05.1905, Page 86
442
DRAUPNIH.
þær og góss sem biskup hafði sölsað undan
þeim hjónum væri réttmætt og lioðið honuni
jafnframt, ef það væri ekki, að sjá svo til að
hann næði þcim aftur, og Björn dæmdi Jóni
þær aftur þar á þinginu og dóma Gottskálks
hiskups ógilda. En livað liafði slíkt að þýða,
jarðirnar lágu allar í umdæmi hiskups og
enginn vogaði sér að kaupa neitt af manni,
veri hann svo mikill sein vera vildi, sem stóð
i banni kirkjunnar. En það þurfti að eins í
bráðina að fara varlega, að ná megninu af
auðlegð Jóns og jarðagóssi á vald sill áður
en hann sameinaði alla krafta sína við Björn
Guðnason.
Biskup þurfti því að hugsa upp nýtt ráð
til þess að fá hann til að afsala sér megninu
af fjármunum sínum, að reita af honuni
stærstu flugfjaðrirnar.
Ikið var komið allnærri þinglokum og
Jón Sigmundarson sagði fram lög og rétt,
eins og hann væri réttur lögmaður. Mál
biskupanna voru öll útkljáð, svo þeir lol'uðu
þeim lögum að eiga sig, sem hvorki snertu
þá og kall þeirra, hirðstjóri og hið verslega
vald á sök og sókn á þeim, hugsuðu þéii',
en hugsuðu sér samt þegjandi þörfina. Finn-
boga lögmanni, sem vikið var úr sessi fynr
Jóni, var ekki svo rótt innanbrjósts, sem
liann leit ut fyrir, heldur ekki Gottskálki