Draupnir - 01.05.1905, Page 100
456
DRAUPNIK.
gjöri lionum alt það i 11, sem hatur, völd <>n
ósvífni í allra fylsta mæli gat áorkað.
Björn Guðnason í ögri, bjargvættur hans,
var dáinn, og hafði Stefán biskup unnið sigui'
að lokum í þeirra málum, og hann bann-
söng Jón Sigmundarson fyrir hluttöku lians
í málum þeirra Bjarnar og svona gekk hon-
um alt í móti.
Þar eð nokkurn veginn var kominu a
góður friður í Hólastifti, Jón Sigmuhdarson
algerlega yfirstiginn, eins og sagl heíir verið,
og flúinn að vestan eftir dauða Bjarnar Guðna-
sonar og hýrðist nú í sárri fátækt á Ivrossa-
nesi í Vatnsnesi, sviftur öllum sínum vinum,
og var Gottskálk biskup nokkurn veginn
ánægður yfir þeim málalokum öllum og þai'
eð hann var nú orðinn mettur á auð og
upphefð og hafði til margra ára samansafnað,
ætlaði hann sér að njóta elliáranna i ró og
næði, sumpart heima og sumpart að ferðast
á milli vina sinna í makindum. Hann tók
sér því ferð á liendur með frítt löruneyh
fyrra hluta júnímánaðar og ætlaði sér að
sitja í Skálholti lijá Stefáni biskupi vini sín-
um, þar til þeir riðu á alþingið. Hann ætl-
aði sér samt að ríða ofurlítinn útúrdúr sei'
til skemtunar, ineðfram til þess að skygnast
eftir um jarðir sínar í Vesturhópinu, líka