Fréttablaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 40
4 matur
Ég smitaðist af þeim Karli Gunnarssyni þörungafræð-ingi og Ólöfu Hafsteinsdótt-
ur næringarfræðingi sem bæði
hafa frætt mig um ágæti þarans
og byrjaði að nota hann þegar ég
vann á Tjörninni. Síðan hef ég
látið sannfærast um að þetta sé
mjög gott fyrir kroppinn en þar-
inn er fullur af næringarefnum.
Hann er auk þess mjög hreinsandi
og losar líkamann við ýmis óæski-
leg efni,“ segir Rúnar.
Hann notar meðal annars beltis-
þara, söl og purpurahimnu. Rúnar
segir best að tína þarann í stór-
streymisfjöru og þá helst einvers
staðar utan við borgarmörkin til
að gæta fyllsta hreinlætis. Hann
segir þá hugmynd liggja á borðinu
hjá sér að gera lítið upplýsingakver
um hvernig sé best að tína, verka
og matreiða þarann og ekki sé loku
fyrir það skotið að hún verði að
veruleika. Rúnar gefur lesendum
uppskrift að þarasnakki og tveggja
þara súpu þar sem hann notar belt-
isþara og marinkjarna. „Beltisþara
má finna víða en hömruð áferð
einkennir hann. Úr honum geri ég
snakkið sem ég fullyrði að sé betra
en venjulegt kartöfluflögusnakk.“
Fleiri þarauppskriftir er að finna
í bók Rúnars og ljósmyndarans
Áslaugar Snorradóttur, Náttúran
sér um sína. - ve
Þarinn bragðgóður
DJÚPSTEIKT
ÞARASNAKK, SEM
KALLAST ÞARUD
Beltisþari
Heilhveiti
Sesamfræ
Maísolía
Skerið beltisþar-
ann í hæfilega bita
og veltið honum
upp úr heilhveiti og
sesamfræjum. Djúp-
steikið síðan í maísolíu.
TVEGGJA ÞARA
SÚPA
1 bolli fínt saxaður
laukur
1/2 bolli fínt saxaðar
gulrætur
1/2 bolli fínt saxað
sellerí
vænn biti af engifer-
rót
5 hvítlauksrif
150 g ristuð sesam-
fræ
1 msk. tómatmauk
4 msk. sesamolía
skvetta af worcest-
ersósu
1 1/2 bolli beltisþari
1 bolli marinkjarni
1 msk. sojasósa
3 l krabbasoð/má líka
nota grænmetissoð
salt
pipar
ef til vill hvítvín
Sjóðið allt saman um
stund og bragðbætið
með hvítvíni í lokin.
GÓÐGÆTI ÚR GNÆGTABRUNNI NÁTTÚRUNNAR
Rúnar segir þarasnakkið betra en kartöfluflögur. MYND/ÁSLAUG SNORRADÓTTIR
Í súpunni er beltisþari
og marinkjarni.
Bóluþang er yfirleitt
ekki notað í matargerð
en á steinunum undir
því fann Rúnar meðal
annars maríusvuntu,
sem er náskyld
purpurahimnu
eða norí.
Matreiðslubókin KitchenAid er kjörin fyrir þá sem vilja nýta Kitchen-
aid-hrærivélina sína til fullnustu. Bókin hefur að geyma samtals
150 alþjóðauppskriftir, sumar sígildar og aðrar nýjar, að grænmetis-
réttum, salötum, súpum, hádegisréttum, kvöldréttum, eftirréttum og
kökum svo dæmi séu nefnd.
Af réttum má nefna indverskt
chapatis, ítalskt foccia og
þýska hveitibrauðið Hunsruck-
er bauerenbrot. Í bókinni er
einnig að finna leiðbeining-
ar um notkun á KitchenAid
fylgihlutum fyrir hrærivél,
hraðara, þeytara, hakkavélar,
pastagerðartæki, pylsu og
kransakökugerðarsett og
fleira. Lesendur ættu því að
verða vísari um gerð miðaust-
urlensks hummus, norskan
borgara eða þýska bratwurst.
Hrært, hnoðað og sneitt
MATREIÐSLUBÓKIN
M
YN
D
/Á
SL
A
U
G
S
N
O
RR
A
D
Ó
TT
IR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
MA
OG HREINSANDI
Matreiðslumeistarinn Rúnar Marvinsson er fylgjandi því að gera mat úr því sem
náttúran og nærumhverfið gefa og fer ekki endilega troðnar slóðir í þeim efnum.
Hann hefur til að mynda þróað uppskriftir úr þara sem allar renna ljúflega niður.
Lífrænt ræktaður, án aukaefna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað