Iðnneminn - 01.05.1996, Blaðsíða 3
Haustið 1993 réð-
ust nemendur Hót-
el- og veitingaskóla
íslands í að gefa út
veglegt skólablað.
Blaðið var gefið út í
samvinnu við Iðn-
nemasamband ís-
lands undir nafninu
Iðnneminn. Nú er
aftur komið að út-
gáfu skólablaðs.
etta blað er eðli
málsins samkvæmt
það síðasta sem gef-
ið verður út í nafni
nemenda Hótel- og veit-
ingaskóla Islands. Ég fagna
því að nemendur skuli ráð-
ast í verkefni á borð við
þetta. Verkefnið krefst mik-
illar vinnu og þar með
nokkurra fórna af hálfu
þeirra sem starfið mæðir
mest á. Verk á borð við þetta
krefst einnig mikillar sam-
stöðu í hópnum og við höf-
um orðið vör við það hér að
hann er samstæður og ræðst
af fullum krafti til atlögu
við þau verkefni sem fyrir
liggja, hvort sem þau tengj-
ast námi eða félagsstarfi.
Sú önn sem brátt lýkur er sú
síðasta sem Hótel- og veit-
ingaskólinn starfar. Tveir
leiðbeinendur sem starfa
við skólann hafa verið ráðn-
ir til starfa við Menntaskól-
ann í Kópavogi þar sem
nám í framreiðslu og mat-
reiðslu mun í framtíðinni
standa til boða. Við vonum
að reynsluleysi þeirra verði
þeim ekki fjötur um fót við
skipulagningu þess náms
sem þar á að fara fram og að
eitthvert brot þeirrar menn-
ingar sem hér hefur skapast
fylgi þeim á nýjar slóðir.
Að hausti munu allir starfs-
menn skólans taka til starfa
á nýjum vettvangi, sumir
við kennslu og aðrir við
önnur störf. Ég vil nota
þetta tækifæri til að þakka
þeim gott samstarf og óska
þeim velfarnaðar. Sumir
þessir starfsmenn hafa verið
samverkamenn mínir í allt
að fimmtán ár en aðrir
skemur. Vissulega fylgir því
eftirsjá að hætta að vinna
með fólki sem maður hefur
átt hnökralaust samstarf við
um langan tíma. Að sjálf-
sögðu fylgir því einnig eftir-
sjá að hverfa frá starfi þar
sem sérþekking manns og
reynsla nýtist og þurfa að
byrja upp á nýtt að afla sér
reynslu og þekkingar á öðr-
um vettvangi. Nemendum
vil ég þakka ánægjulegt og
gefandi samstarf. Það eru
vissulega forréttindi að hafa
það fyrir atvinnu að fylgjast
með ungu fólki í leik og
starfi og sjá það þroskast
bæði vitsmunalega og fag-
lega, ekki síst ef maður telur
sig hafa átt einhvern hlut að
máli.
Að lokum vil ég hvetja
menn til að halda vöku
sinni í varðveislu réttinda
sinna. Þótt ekki virðist
stefnt að breytingum á rétt-
indum er ætíð hætta á að
það los sem óhjákvæmilega
verður þegar verið er að
koma hlutum fyrir í nýjum
farvegi verði til þess að
menn sofni á verðinum og
óæskilegar breytingar eins
og laumist inn.
Ég vil ítreka þakkir mínar til
samstarfsmanna minna og
nemenda fyrir ánægjuleg
kynni og óska þeim alls
góðs í framtíðinni. Einnig
flyt ég framreiðslu- og mat-
reiðslumönnum kveðju
skólans og starfsmanna
hans með von um að grein-
arnar megi lifa og dafna um
langa framtíð.
Guðmundur Agnar Axelsson
skólameistari
6
Nýr Hótel- oq
mQtvælaskóíi
10
StQðbundnar
Pranskor
mQtrQÍðsluoðPorðir
MotrQiðslusvQinor
18
AAilljónkall ó hvorn
nomo!
21
Innra oPtirlit
22
SkommtanolíP nQmo
íHVÍ
, 24
flmnosty ó íslondi
25
OrloP oq
Qtvinnul0i,jsi
28
l. maí óvorpið
29
Frumvarp
PélagsmálaráðhGrra
30
Borgorholtsskólinn
33
Kortatoikning í
Horsons
34
NomondQpélQg F.B.
42
OBGSSU
47
Bit og klýpingur
IÐNNEMINN .