Iðnneminn - 01.05.1996, Blaðsíða 21
V ILHJÁLMUR H. G ÍSLASON
Samkvæmt lögum nr.
93/1992 skal koma á innra
eftirliti á öllum opinberum
stöðum þar sem matvæli
eru höfð um hönd. Á þetta
jafnt við um stórar mat-
vælavinnslur og litla sölu-
turna sem eingöngu selja
pylsur.
egar farið er að skoða þetta nýja
eftirlitskerfi fallast mörgum
hendur og þeir eru til sem segja:
"Hvað á þetta nú að þýða? Við höfum
ekki haft þetta og það hefur enginn
dáið enn þá." Matvælavinnsla í dag er
ekki sú sama og áður fyrr. I dag eru
notuð margs konar aukaefni sem ætl-
uð eru til margra hluta, s.s. rotvarnar-
efni, litarefni, þráavarnarefni, svo tek-
in séu fáein dæmi. Við reynum líka að
hafa framleiðsluna eins frá degi til
dags.
Aðeins skipulögð vinnubrögð geta
tryggt okkur að notuð séu rétt efni í
matvælin og líka að varan sé alltaf sú
Margir hafa ofnæmi gagnvart þeim
efnum sem við notum. Þessir sömu
kaupa ef til vill vörur sem við höfum
framleitt, verða varir við ofnæmisein-
kenni og trúa því að ástæðan sé varan
sem þeir neyttu. Við lestur á inni-
haldslýsingu vörunnar stendur ekkert
um að við notum þetta efni og því dett-
ur þeim efalaust í hug að nú sé verið að
svindla. Það næsta sem getur gerst er
að lögfræðingur mætir hjá okkur og
vill ræða málið. Það eina sem getur
bjargað okkur frá leiðindum er að við
getum lagt fram skriflega lýsingu á
vinnubrögðum við framleiðslu um-
ræddrar vöru. Þessi lýsing þarf að vera
vottuð af þeim sem vann verkið svo
hún hafi eitthvert gildi.
Það fyrsta sem gera þarf er að koma
upp starfshópi inni á matvælavinnsl-
unni. Þessi hópur býr svo til flæðirit
fyrir vinnubrögðin sem viðhöfð eru í
vinnslunni. (eldhúsinu). Út frá þess-
um flæðiritum er svo farið í að gera sér
grein fyrir áhættuþáttum sem hugsan-
lega gætu komið upp við vinnuferlið.
Hópurinn ákveður hvernig eftirlitinu
skuli háttað og hvernig bregðast skuli
við frávikum.
Með því að koma upp innra eftirliti
verða vinnubrögðin markvissari og
mörgum starfsmanninum finnst betra
að vinna verkin en áður þar sem fyrir
liggur hvað hann þarf að gera. Enginn
þarf lengur að snúast í kringum sjálfan
sig og spyrja: "Hvað næst?"?
Því miður verður svona stutt saman-
tekt ekki nema "reykurinn af réttun-
um".
Öllum sem starfa við hvers kyns
matvælavinnslu er nauðsynlegt að
kynna sér framkvæmd innra eftirlits-
ins því á vinnustað er aldrei einn á-
byrgur heldur allir. Ég vil svo benda
nemendum á námskeið sem haldið er á
vegum skólans í innra eftirliti.
sama.
IÐNNEMINN 21