Iðnneminn - 01.05.1996, Page 27
þannig að fá fulla orlofs-
uppbót fjórum sinnum á
samningstímanum óháð
því hvenær námssamn-
ingur hefst og óháð því
hvenær á námstímanum
iðnneminn sækir skóla.
Til þess að eiga rétt á
atvinnuleysisbótum þarf
iðnnemi að hafa unnið að
lágmarki 425 dagvinnu-
stundir síðustu 12 mán-
uði. Þetta gefur 25% bæt-
ur sem er lægsta prósent-
an en hækkar um 1% við
hverjar 17 dagvinnu-
stundir eftir það. Fullar
bætur fær sá er unnið
hefur 1700 dagvinnu-
stundir eða fleiri á síð-
ustu 12 mánuðina.
Þeir iðnnemar sem eru
skuldlausir félagar í Iðn-
nemasambandi íslands,
eða viðkomandi sveina-
félagi þar sem það á við
og verða atvinnulausir
eftir að hafa lokið náms-
samningi, eða þegar
námssamningi er rift
geta fengið atvinnuleys-
isbætur frá sínu fagfé-
lagi. Til þess þarf þó vott-
orð frá Iðnnemasam-
bandi íslands.
Ef iðnnemi, sem hefur
áunnið sér bótarétt, hefur
auk þess stundað skóla-
nám á siðustu 12 mánuð-
um í a.m.k. 6 mánuði og
lokið námi, eða einsýnt
þykir að hann hafi hætt
námi, skal reikna honum
520 dagvinnustundir til
viðbótar vegna námsins
en það gera um 55% bæt-
ur í heildina með 425 lág-
marksstundunum og 1%
til viðbótar fyrir hverjar
17 dagvinnustundir til
viðbótar. Fullar bætur
fær sá er unnið hefur
1180 dagvinnustundir
eða fleiri og stundað
skóla í a.m.k. 6 mánuði
síðustu 12 mánuðina.
Þetta á eingöngu við
um þá sem ljúka námi og
tekur því ekki gildi fyrr
en á næstu önn þegar
ljóst er að nemi er ekki
lengur skráður í skóla.
Fær nemi þá þessar
stundir metnar aftur í
tímann þannig að ef
hann hefur verið at-
vinnulaus um sumarið
fær hann 30% til viðbótar
um haustið.
Að geyma bótaréttinn
I lögunum er gert ráð fyr-
ir að sá sem hættir að
vinna til að fara í nám
geti geymt bótarétt sinn í
allt að 24 mánuði. Þetta á
ekki við um þá sem ein-
göngu vinna yfir sumar-
tímann.
Að skrá sig atvinnu-
lausan
Brýnt er að allir atvinnu-
lausir iðnnemar skrái sig
hjá sínu sveitarfélagi,
jafnvel þó þeir eigi ekki
rétt á bótum því alltaf er
möguleiki að þeir fái
vinnu ef þeir eru skráðir.
Einnig skal bent á At-
vinnumiðlun
námsmanna sem er til
húsa hjá Félagsstofnun
Stúdenta. Sími: 562 1080.
Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Iðn-
nemasambands Islands í
síma 551 4410.
valdimar Gíslason hf.
Skeifan 3 108 Reykjavík
1B 588 9785 Fax 568 0663