Iðnneminn - 01.05.1996, Qupperneq 31
ingsatriði hvort og hvaða kaup
nemar í starfsþjálfum fá fyrir
sína vinnu, í því dæmi eru ýms-
ir möguleikar. Sumum finnst
ekki eðlilegt að fyrirtæki borgi
nemum í starfsþjálfun en öðrum
finnst að nemandinn eigi að fá
nemalaun fyrir sína vinnu."
Eygló segir það miður hvað
undirbúningurinn undir flutn-
ing iðngreina í Borgarholtsskóla
hefur gengið seint og nemendur
því ekki vel undir búnir undir
flutninginn. „Eins er það með
skólana sem námið er flutt úr,
þeir hafa ekki langan aðlögunar-
tíma. Við höfum verið með
kynningarstarf í gangi og höfum
til dæmis farið í alla tíundu
bekki bæði í Grafarvogi og Mos-
fellsbæ, einnig höfum við sent
út kynningarbæklinga um allt
land en það má segja að nem-
endur hefðu kannski mátt vita
þetta fyrr. Það verður hins veg-
ar lagður metnaður í það að
nemendur í málm- og bíliðn-
greinum sem þurfa að flytja sig
geti haldið áfram án þess að
þeir tefjist í náminu. Bara land-
fræðilega séð er þetta þó heil-
mikil breyting fyrir námsmenn-
ina. I sumar á að reisa skiptistöð
uppi á Bíldshöfða og þaðan eiga
að ganga vagnar að mér skilst á
10 mínútna fresti, þannig að
samgöngur ættu að vera góðar."
Að lokum segir Eygló stefnuna
vera að hafa góðan anda í Borg-
arholtsskóla og vænleg starfs-
skilyrði þar sem góð starfs- iðn-
og bókmenntun verður aðals-
merkið.
„Viljum ekki að aðrir skólar
sq\j útiiokaðir“ segir Brjánn Jónsson
framkvæmdastjóri Iðnnemasambands íslands
Iðnnemasambandið fagnar að
sjálfsögðu stofnun Borgar-
holtsskóla og auknum tæki-
færum til iðn- og starfs-
menntunar þar sem boðið
verður uppá betri tækjakost
og aðbúnað fyrir nemendur."
Brjánn segir þó að hafa verði
í huga annars vegar hvemig
hugtakið kjarnaskóli verði skil-
greint og hvemig verkaskiptingin
verði milli skólanna. ,Þegar Iðn-
nemasambandið hefur lagt til
stofnun kjamaskóla, þá hefur var-
ið varað við því að útiloka aðra
skóla frá kennslu í viðkomandi
iðngreinum, frekar að kjarnaskól-
inn sem slíkur fengi umfram fjár-
magn til sérhæfingar og þróunar
námsbrauta. Við tökum einnig
undir hugmyndir um að kjarna-
skólar verði huglægar stofnanir
þar sem nemendur, kennarar og
stjómendur fleiri en eins skóla fái
að koma að stefnumótun frekar
en að bynda hana við ákveðinn
skóla. Skólar sem hýsa kjama-
skóla eiga síðan fyrst og fremst að
vera þróunar og þjónustustofnun
fyrir ekki síst aðra skóla en ekki
einokunarkerfi á tilteknar iðn-
greinar." Og Brjánn segir enn-
fremur: ,Þrátt fyrir tilkomu Borg-
arholtsskóla sættum við okkur
ekki við að öðmm skólum á höf-
uðborgarsvæðinu og sérstaklega í
dreifbýlinu verði meinað að bjóða
upp á námsbrautir í málmiðnað-
argreinum svo framarlega sem
viðkomandi skóli geti boðið upp
á slíkt nám. Skólar eiga að fá að
bjóða uppá það nám sem þeir
hafa burði til með tilliti til nem-
endafjölda, tækjakosts og fjár-
magns. Það er til dæmis í engu
samræmi við yfirlýsingar stjórn-
valda um aukna áherslu á iðn- og
starfsnám ef tilkoma Borgarholts-
skóla þýðir að iðnnám verði lagt
niður við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti."
Sem framkvæmdastjóra Iðn-
nemasambandsins líst Brjáni vel á
hugmyndirnar um starfsnáms-
brautir í einstaka greinum svo
sem í félagsþjónustu, verksmiðju-
störfum og afgreiðslu. Hann
bendir á að starfsnámi hafi ekki
verið sinnt sem skyldi hingað til
og segir megnið af vinnuafli á ís-
landi vera ómenntað. ,Varðandi
þær hugmyndir að skólinn sé
gerður ábyrgur fyrir starfsþjálfun
þá er INSI að sjálfsögðu fylgjandi
þeim. Við höfum lengi barist fyr-
ir því að nemar fái að Ijúka því
námi sem þeir hefja, en í dag er
mikill starfsþjálfunarvandi í til-
teknum iðngreinum sem útilokar
marga frá því að ljúka námi. Hins
vegar þarf að leggja áherslu á að
það vinnuframlag sem nemar
leggja fram verði launað. INSI
mun ekki líða þá þróun að starfs-
námsnemendur eða iðnnemar
verði ókeypis vinnuafl fyrir at-
vinnulífið. Það er hlutverk ASI að
móta skýra stefnu í þeim málum
gagnvart væntanlegurm starfs-
námsnemum." Að lokum ítrekar
Brjánn þá afstöðu sína að starfs-
námsbrautir verði settar á stofn til
hliðar við núverandi löggiltar iðn-
greinar og skari þær sem minnst
svo ekki komi til ódýrt hálf-
menntað vinnuafl sem taki upp
starfsþjálfunarpláss iðnnema.
Iðnnemasam-
band Islands
hefur á undan-
fbrnum árum
lagt til að
stofnaður verði
kjarnaskóli og
þótti því upp-
lagt að spyrja
framkvæmda-
stjóra Iðn-
nemasam-
bandsins að
því hvernig
Borgarholts-
skóli samræm-
ist væntingum
INSÍ.
Brjánn Jónsson
framlcvæmdastjóri
INSÍ