Ljósberinn - 17.05.1924, Blaðsíða 1
Jetní.y „agði: „Leyfið börnunum að lcoma til min og banniðþeim
það ekki, þvi slikum heyrir Guðs riki tilu. Mark. 10, 14.
IV. ár ) Reykjavík, 17. maí 1924 ) 20.-21. bl.
Sjá jeg stend við dyrnar.
Húskveðja flutt við jarðarför Helga Árnasonar
af sr. Fr. Friðrikssyni.
Sjá, eg stend við dyrnar og kný á.
Ef einhver heyrir raust mína og
lýkur upp dyrunum, þá mun eg
fara inn til hans og neyta kvöld-
verðar með honum og hann með
mér. Sá er sigrar hann mun eg láta
sitja hjá mér í hásæti minu, eins og
eg sjálfur sigraði og settist hjá föð-
ur minum i hásæti hans.
Opinb. 3, 20—21.
Jeg sje hann fyrir augum anda míns, hinn lifandi
blessaða Frelsara og Drottinn. Hógvær er hann og
lítillátur, skínandi í fegurð sinni og kærleika; hann
Sengur um kring og leitar sjer að vinum og verka-
hiönnum. Jeg sje hann standa við dyrnar og knýja á.
Kann knýr á með ýmsu móti, en víða er inni fyrir
Svo mikill skarkali, að menn heyra ekki, þegar barið
er að dyrum, svo að sá sem úti er verður að gjöra það
°ft. Sælt er það heimili, sem heyrir raust hans og
^ýkur upp fyrir honum svo að hann megi ganga inn.