Ljósberinn - 01.11.1939, Side 8

Ljósberinn - 01.11.1939, Side 8
240 LJÓSBERINN vildu ekki koma, sendi konungurinn þjón- ana aftur af stað — út á stræti og gatna- mót og lét þá kalla saman fátæklinga, blinda, menn, halta og vanheila.. En þá hugsar drengurinn sem svo: Pac) var búiö að kaupa í matinn og búa hann til, þess vegna varð að nota hann; það var þó betra að fátæklingarnir feng'ju hann, en að vera að geyma hann í búri konungsins og láta hann skemmast. Hann va.r konunginum al- veg sammála um þetta. En svo var eitt, sem drengurinn átti erf- itt með að átta sig' á. Var ekki ölJ þessi saga einhverskonar líking? Va.r það i raun og veru, að Guð vildi aðeins hafa »fína fólkið« á þessari hátíð sinni á himnum? Það stóð ekkert. um það í byrjun, að hann hefði boðið óðrum. Að fátæklingarnir kom- ust í veizluna var bara því að þakka* að hinir höfnuðu boðinu. Hann varð að fá betri upplýsingar um þetta, og þess vegna rétti hann upp hendina. Og kennarinn útskýrði málið á þessa leið: Jesús atti marga mótstöðumenn: fariseana og' Sadúseana, hina skriflærðu og' æðstu prestana. Sumir þessara manna voru ein- mitt viðstaddir, þegar Jesús sagði þessa dæmisögu um brúðkaup konungssonarins. Ou' begar hann talaði um höfðingja og heldri menn, sem höfnuðu boði konungs- ins, þá átti hann einmitt við þessa and- stæðinga sína, sem voru svo vel settir í bessum heimi, að þeir kærðu sig ekkert um það ríki og þá hátíð, sem Jesús var að boða. —- Nú varð líkingamál sögunnar öllum skil janlegt. Kennarinn sagði, að Guð elskaði alla, a.U- ir væru kallaðir, allir boðnir; enginn mætti halda, að hann væri settur h.já. Jesús hefði hagað orðum sínum svona til að aðvara þá andvaralausu, sem ekki elska Guð og Son hans. Og svo var eitt enn, seinna í sögunni, sem drengnum fannst svo undarlegt: Kon- ung'urinn kemur inn, til að heilsa gestum sínum. Þá sér hann einn, sem ekki er í brúðkaupsklæðum. — Ot með hann! Og þjónarnir varpa honum á dyr! Þetta var sorglegt! Kennarinn gefur skýringu: Þao var sið- ur í Austurlöndum, er ríkir menn héldu veizlur, að þeir gáfu gestum sínum hátíða- búning. Þegar Jósef hélt bræðrum sinum veizlu I Egiptalandi, gaf hann hverjum þeirra alklæðnað (I. Mós. 45: 22). Og þeg- ar glataði sonurinn kom heim og bað fyrir- gefningar, faðmaði faðir hans hann að sér og sagði við þjóna sína: Komið fljótt með hina beztu skikkju og færið hann í, drag- ið hring á hönd hans og skó á fætur hon- um (Lúk. 15: 22). Þannig hefir Guð líka hátíðabúning handa okkur, ef við þiggjum boð hans. Það er réttlætisskrúði Jesú Krists. Og um þann búning eigum við fallegt vers: Dýrðarkórónu dýra Drottinn mér gefur þá; réttlætisskrúðann skýra skal ég og líka fá upprisudeginum á, hæstum heiðri til reiddur, af heilögum englum leiddur 1 sælu þeim sjálfum hjá. Okkur eru fyrirgefnar allar okkar synd- ir, ef við trúum á Jesúm Krist og snúum baki við öllu illu. Enginn fær að vera í Guðs ríki, sem ekki er skrýddur hinum rétta búningi. Kennslustundinni var lokið. En margir drengjanna geymdu í hjarta sínu hugsan- irnar um brúðkaup konungssonarins. Þeir höfðu sannfærst um það, að þeir væru líka boðnir. Og þeir þráðu að eignast brúð- kaupsklæðin. Á. Jóh. ( blaði nokkru stóð svo hljóðandi frétlagrein: »Hinn alþekkti leikart N. N. varð fyrir þvi óhappi í gær, að bifreið ók yfir h,ann. Þó voru meiðslin ekki meiri en svo, að hann lék í tveim »stykkjum,« í gærkvöldi«. Pegar gömul koná heyrði þetta lesið, hrópaði hún upp yfir sig: »Ja, flest geta menn nú orðið! Nú leika þeir, ])ó þeir séu í tvennu lagi!«

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.