Ljósberinn - 01.02.1944, Page 2
2
LJÖSBERINN
Fyrsta „víðavangshlaupið“ um-
hverfis Reykjavík fór fram árið
1916, „Íslandsglíma“ var fyrst háð
1905.
★
Mr. Henry Clepper, Bandaríkja-
maður, hefur komizt að þeirri nið-
urstöðu, að sú trjátegund, sem hafi
orðið mannkyninu til mestra nytja,
sé pálminn, en næstur sé kókós-
pálminn. Því næst er möndlutréð,
sem var til þrem öldum f. Kr., —
þá eplatréð, fíkjutréð, olíuviðurinn
og sítrónutréð, sem komið er frá
Indlandi, og hefur verið ræktað í
2500 ár. Loks komu kíníntréð og
gúmmítréð.
★
Hér eru nokkur sjaldgæf karl-
mannsnöfn sem til voru m. a. í
Skagafirði 1912: Dúi, Eiður, Hróar,
Oddgnýr, Hermundur, Hólmsteinn.
. ★
Georg, niannsnafnið, er af grísk-
um uppruna og þýðir jarðyrkju-
maður.
★
Sá, sein fyrstur dró fána að hún
á Suður-heimskautinu var norski
landkönnuðurinn Roald Ainundsen.
Gerðist það 14. desember 1911.
★
Fyrir stríð kostaði símskeyti til
New York í Bandaríkjunum kr. 2,51
fyrir hvert orð.
★
Ilraði liljóðsins í vatni mun vera
1.435 km. á sekúndu.
★
Arið 1906 mannfjöldi Reykjavík-
ur 6682 manns.
★
Þegar klukkan er 12 á hádegi i
Reykjavík, er hún 8 fyrir hádegi
í New York en 10 e. h. í Japan.
Frelsisstyttan í New York er 150
fet á hæð og hún vegur 225 smá-
lestir. Andlitið er 10 fet á brcidd.
Handleggurinn, sem lieldur á kyndl-
inum, er 40 feta langur og 12 fet
í unimál, þar sem liann er sverast-
ur. — Bygging styttunnar stóð yfir
í tvö ár. 4. júli 1884 var hún af-
lient Bandaríkjunum í Paris. Næsta
ár var hún tekin sundur og flutt
til Bandarikjanna. Forseti Banda-
ríkjanna, Grover Cleveland, veitti
gjöfinni viðtöku fyrir hönd Banda-
ríkjaþjóðarinnar 28. október 1886.
★
Hraði snigikins er að meðaltati
0.0015 metrar á sekúndu. — Hraði
ljóssins er 300 millj. metrar á sek.
Höfundur „Miinchhausens-sagn-
anna“ vinsælu hét fullu nafni Karl
Fredrich Hieronymus Freiherr von
Munchhausen. Hann var fæddur 11.
maí 1720 í Bodenwerder í Hann-
over, og lézt þar 22. febrúar 1797.
I’yrst munu sögur lians og „frá-
sagnir“ hafa verið gefnar út í Ox-
ford árið 1785.
★
Ikkaboð var íslenzkt karlmanns-
nafn, sein til var fyrir mörgum
árum.
★
„Gangur“ jarðarinnar í kringum
sólina fer fram með 4 mílna hraða
á sekúndu.
★
Talan trilljón —- þ. e. a. s. þús-
und billjónir, er skrifuð svona:
1.000.000.000.000.000.
★
Fjarlægðin á milli sólarinnar og
tunglsins er talin vera 20.666.800
mílur að meðaltali.
★
Svölur geta náð 150—200 km.
braða á klukkustund.
★
Úr gömlu blaði frá árinu 1907:
„Árdegis 1. aprílmánaðar 1905 var
það hljóðbært um Reykjavíkurbæ
að gull væri fundið hér í jörðu.
Valnsleitarmenn, sem voru að bor-
un i svokallaðri Vatnsmýri spölkorn
sunnan við bæinn (Rvík) höfðu
fengið gull í borana. Allir urðu
gagnteknir af fregninni og ekki var
uin annað talað i höfuðstaðnum
lengi á eftir en gullið í Vatnsmýr-
inni. Flestir fögnuðu því en nokkr-
ir urðu íhyggjufullir, þeir vildu
vera án gullsins til þess að losna
við það böl, sem því er samfara . .“
★
Filarnir, stærstu dýrin, sem lifa
á landi, eru svo hræddir við mýs,
að þeir nötra og skjálfa í hvert
skrpti, er þeir koma auga á þær!