Ljósberinn - 01.02.1944, Qupperneq 26

Ljósberinn - 01.02.1944, Qupperneq 26
26 LJÓSBERINN Kemur út einu sinni í mánuði, 20 síður. — Ár- gangurinn kostar 7 krónur. — Gjalddagi er 15 apríl. Sölulaun eru 15% af 5—14 eint. og 20% af 15 eint. og þar yfir. Afgreiðsla: Bergstaðastræti 27, Reykjavík. Sími 4200. Utanáskrift: LJÓSBERINN, Pósthólf 304, Reykjavík. Prentsmiðja Jóns Helgasonar, Bergstaðastr. 27. Kæru kaupendur! Ég þakka ykkur fyrir tryggð og vináttu — já, og alla þolinmæðina á þessu liðna ári. Oft hafið þið orðið að híða lengi eftir blaðinu ykkar — og einnig nú. Og iftörg hafa vonbrigðin verið, þegar pópturinn befur komið — en ekki var Ljósherinn ykkar með. Mér er allt þetta ljóst og þaö hefur valdið mér áhyggj- um, en ég hef ekki getað komið þessu í !ag enn. Máslce það takist á þessu ári. Ég mun gera allt, sein í mínu voldi stendur til þess. Ef einhverjir vildu senda blaðinu efni til birting- ar, svo sem: vel þýddar smásögur, um sumardvöl í sveitinni, dýrasögur o. fl. þá væri það vel þegið og gerði blaðið fjölbreyttara. VANSKIL bið ég ykkur að tilkynna, og skal úr bætt, ef hægt er. En á því ríður, að ekki sé það látið dragast lengi að tilkynna, ef blöð vantar. Það er oftast tilgangs- lítið, að panta blöð, sem vanta inn í árganga, eftir mörg ár. Þá vil ég að endingu þakka þeim hinum mörgu, sem hafa sent blaðinu gjafir og áheit og mörg elsku- leg bréf, sem hafa glatt mig og yljað mér um hjarta- rætur. — Því miður get ég ekki skrifað þeim öll- uin, brestur til þess tíma, en bið Ljósberann að bera þeim öllum kæra kveðju mína og þökk fyrir vin- áttuna. ÍSLENZK KRISTNIBOÐSSTÖÐ í KÍNA. Um það er nú rætt, að koma á fót íslenzkri kristni- boðsstöS í Kína, og eitthvað mun vera komið í sjóð, sem safna á í fé til slíkrar stöðvar. Við erum þess fullviss, að Guð blessar þessa fyrir- ætlan kristniboðsvina, og stöðin komist á fót. En nú hefur mér dottið hug, livort þið, kaupendur Ljósberans, vilduð nú ekki taka þátt í þessu starfi með því að safna í barnasjóð fyrir íslenzka kristni- boðið, því að í sambandi við allar kristniboðsstöðv- ar, er barnastarf, t. d. sunnudagaskólar. Mætti þá úr þeim sjóði, ef dálítið safnaðist, launa 1 eða 2 sunnu- dagaskólakennara. Um margra ára skeið safnaði Ljósberinn í sjóð „kínverska drengsins“ og safnaðist oft talsvert. Nú eru meiri peningar og því ætti nú talsvert að safnast í Sunnudagaskólasjóð islenzka kristniboðsins í Kína. Ljósberinn vill taka á móti slíkum gjöfum, birta þær í blaðinu og setja féð á vöxtu í banka, þar til stöðin síðar meir tekur til starfa. ÚR BRÉFI. Ég set hér að gamni mínu eitt slíkt hréf, sem ég fékk nýlega með 100 krónu seðli innan í til Ljós- berans: „Herra Jón Helgason. Ég skrifa yiVur þessar lnur í tilefni þess að við lijónin höfum keypt Ljósberann og Heimilisblaðið frá byrjun. Konunni minni þótti vænt um Ljósber- ann. Þegar liann kom var allt af byrjað að lesa hann, þótt önnur blöð væru lcomin. En hún andaðist i haust, svo ég er einn eftir, en þótt ég sé lcominn á 77. árið þá held ég áfrain að kaupa blöðin yðar á meðan Guð gefur mér sjónina til að lesa þau. Ég vona, að Ljósberinn líkist börnunum, sem hann er ætlaður, í því að vera lítillátur, geta tekið við litlu, þess vegna legg ég hér innan í lítinn þakklætisvott frá okkur hjónum til Ljósberans, sent ég vona að þér virðið á betri veg þótt lítið sé. Svo bið ég Guð að blessa yður og Ljósberann á þessu nýbyrjaða ári og í fram- tíðinni og hann gefi yður og Ljósberanum styrk til þess að göfga og bæta unga og gamla eins og hingað til.“.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.