Ljósberinn - 01.04.1946, Side 7

Ljósberinn - 01.04.1946, Side 7
ljósberinn 67 DRAUMUR Að áliðnum vetri 1936 dreymdi mig draum þann, sem hér fer á eftir: Eg þóttist vera á ferð með manni, sem þekkti lítið. Leið okkar lá yfir hátt fjall, sem Skálakambur nefnist. Er það illfær leið í harðfenni og með verstu tor- færurn á vestanverðmn Hornströndum. Aið lögðmn af slað frá Hælavík að áliðn- um degi. Ferðin gekk vel upp á Skála- kamb. En þegar við fóriun að ganga nið- Ur hann, vestanverðan, fundum við til- finnanlega, livað okkur vantaði, en það v°ru bæði broddstafur og göngujárn (mannbroddar) en fylgdarmaður minn liafði kollótt prik, sem liann kvað vera betra en ekkert ef kamburinn væri ekki því harðari. Við héldum því áfram niður sniðið, en er við komum þar sem fór að verða brattara, var snjórinn miklu harð- an. Fór fylgdarmaður minn þá að pjakka för handa okkur með prikinu, sem við svo stikluðum í með varúð. En er við komum þar, sem brattinn var mestur, staðnæmist fylgdarmaður minn allt í einu og segist nú ekki geta hjálpað mér lengra, og hann efist um, að hann kom- ist niður sjálfur, þó hann hafi ekkert 1 eftirdragi, og sé nú um ekkert annað :,ð ræða, en að ég setjist liér riiður og bíði meðan liann fari niður að Búðum *d þess að fá hjálp til að koma mér nið- nr. Eg samþykki þelta strax og leggur bann því af stað, en gengur mjög sein- lcga; samt smáþokast hann yfir það versla, en gengur skár þegar neðar dregur og ég sá síðast til lians er liann hvarf niður af skálabrekkunni (en það er brekka, sem liggur niður að bænum að Búðum). Það var mikið farið að skyggja og mér fannst ég vera búin að sitja þarna lengi, mér var orðið mjög kalt. En hvers vegna kom enginn til að hjálpa mér? Það var liðin, að mér fannst, óskiljanlega lang- ur tími frá því fylgdarmaður minn hvarf mér. Vegalengdin frá mér að Búðum var ekki lengri en það, að hún hefði ekki átt að taka meira en hálftíma fram og til haka. Það dimmdi, það var orðið næst- um aldimmt. Þá sýndist mér ég sjá ein- hverja þústu, nokkru fyrir utan mig. Ég sá það ekki glöggt, vegna þess live dimmt var, en mér sýndist þetta öllu líkast því, sem það yæri maður með þunga byrði á bakinu. Von mín um, að þarna væri kom- inn einhver mér til hjálpar, lifnaði, og ég fór að kalla, en fékk ekkert svar. Enn leið langur tími, að mér fannst. Það var orðið svo koldimmt í kringum mig, óskilj- anlega dimmt, þar sem snjór lá yfir öllu. Eg var orðin helköld, og búin að missa alla von um hjálp, og mér fannst ég ekki geta hugsað. Allt í einu fann ég (ég sá ekki neitt), að það stóð einliver hjá mér. Eg þóttist segja ofur lágt: Hver er þar? En ég fékk ekkerl svar, en ég fann, að það var tekið í hönd mína og ég reist á fætur og frá þessu handtaki fann ég svo mikinn styrk og yl, sem streymdi um mig alla, að ég fann ekki til kulda á sama augnabliki. Fylgdarmaður minn hélt nú af stað upp kambinn (sömu leið til baka og við köfðurn farið, hinn áðurnefndi

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.