Ljósberinn - 01.12.1960, Page 23
LESKIR
Um jólin er töluvert um þaö,
að vinafjölskyldur bjóði hver
annarri heim. Við birtum hér
nokkra leiki, sem bæði börn og
fullorðnir gætu haft gaman af
að fást við í slikum heimboð-
um.
Hlátur og grátur.
Þátttakendur setjast i hring.
Einn þeirra kastar peningi upp
i loftið um leið og hann segir:
„Tala eða merki“. Allir fylgj-
ast með, hvort kemur upp. Ef
talan kemur upp, eiga allir að
taka til og hlæja, en ef merkið
kemur upp, eiga allir að gráta.
Sá, sem hlær þegar á að gráta,
eða öfugt, verður annað hvort
að vera úr, eða afhenda pant.
Frá því peningurinn er tek-
inn upp af gólfinu og þar til
hann lendir þar aftur verða ail-
ir að vera hljóðir, og enginn
má láta nein svipbrigði sjást.
Taka ofan.
Gestirnir standa i hring, með
hendur á baki. Einn hefur iiatt
á höfði. Annar situr við hijóð-
færi og leikur eitthvert lag, en
verður helzt að snúa baki við
þátttakendum. Þegar hljóð-
færaleikarinn byrjar að leika,
ganga allir þátttakendur í
hring, og sá sem hefur hattinn
setur hann á höfuðið á þeim
sem er fyrir framan hann.
Þannig gengur það koll af kolli.
Enginn má flytja hendurnar
af bakinu fyrr en hatturinn er
kominn á höfuðið. Sá, sem
hefur hattinn á höfðinu þegar
tónlistin hættir er úr leik.
Að lokum eru aðeins tveir
eftir. Þeir standa hver á móti
öðrum, og annar hefur hattinn
á höfðinu. Þegar tónlistin
byrjar, gengur hatturinn á
milli, og þegar tónlistin hættir
hefur sá unnið, sem hattlaus er.
BréfpokaboShlaup.
I öðrum enda herbergisins er
borði stillt upp við vegg. Á
borðinu er komið fyrir bréf-
pokum, sem þurfa helzt að vera
nokkuð fleiri en þátttakendur.
Þátttakendum er síðan skipt í
tvo hópa, sem stilla sér upp
samsíða, hinum megin í stof-
unni.
Þegar merki er gefið, hlaupa
(eða ganga) þeir fremstu að
borðinu, taka poka og blása
hann upp, sprengja liann og
fara siðan til baka, og þannig
koll af kolli.
Hlaupaleikur.
Þennan leik þekkja eflaust
margir. Stólum er raðað í tvær
raðir, þannig að þeir snúi bök-
um saman. Stólai’nir eiga að
vera einum færri en þátttak-
endur.
Þátttakendur raða sér upp
við stólana, og einhver leikur á
hljóðfæri. Síðan er gengið í
kring, og þar til tónlistin hætt-
ir, þá reyna allir að setjast. Sá,
sem ekki nær stól til að setjast
á, er úr leik. Áður en næsta
umferð byrjar er einn stóll tek-
inn frá. Að lokum eru aðeins
tveir þátttakendur eftir, sem
þramma í kringum einn stól.
Sá sem nær honum, er sigur-
vegari.
Þar sem ekkert hljóðfæri er,
má notast við útvarp, eða ein-
hver stjórnar og segir: „Gang-
ið“ og „setjist“ eftir þvi sem
við á.
Á hnjánum.
Þeir tveir, sem valdir eru tii
þess að leysa þessa þraut,
þurfa að vera meðal hinna lipi-
ari í hópnum. Látið þá leggjast
á hnén gegn hvor öðrum, með
nokkru millibili.
Þeir eiga að liggja á vinstra
hné, og halda með hægri hendi
um hægri ökla, þannig að
hægri fótur snerti ekki gólfið,
heldur sé eins teygður aftur og
hægt er. Annar á að hafa hálf-
fullt vatnsglas í þeirri hendi
sem laus er, hinn heldur á
tómu glasi. Þrautin er í þvi
fólgin, að hella vatninu úr öðru
glasinu í hitt, án þess að dropi
fari til spillis. Þetta á að hafast
með lagni, en auðvelt er það
ekki.
Jjoilennn. ------------------_ N
Barna-ogunglingablað með mynd-
um. Kemur út sem svarar cinu
sinni á mánuði. Formaður út-
gáfustjórnar er Ólafur Ólafsson
kristniboði, Ásvallagötu 13, sími
13427.
Ritstjórar: Ástráður Sigurstein-
dórsson, skólastjóri (áb.) og
Sigurður Pálsson, kennari. —
Afgreiðslumaður er Magnús
Ágústsson, Ægissíðu 46, sími
14343.
Utanáskrift blaðsinB er: Ljósber-
inn, pósthólf 243, Reykjavík.
Áskriftargjald er kr. 36.00.
Gjalddagi er eftir útkomufyrsta
blaðs ár hvert.
Prentstaður í Félagsprentsm. h.f. j
LJQSBERINN
Í55