Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Blaðsíða 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ
HALFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1908.
Reykjavik, 1. júní
11. blað
)FunaFp«
kem frá solli synda
með sorg og angurstár,
að leita þeirra linda,
sem lækna hjartans sár.
Af litlu var að láta,
nú legst ei annað ráð
en brot mitt bljúgur játa
og biðja guð um náð.
Eg gekk svo heill og glaður
við guð og menn í sátt,
en sit nú sjúkur maður
við sektarbjargið hátt.
Mér sýnist sólin bjarta
af sœtum himni máð,
ef hverfur mínu hjarta,
ó lierra guð, þin náð.
Æ, minstu minnar öndu,
hún mœnir, guð, til þin,
og Ijá mér Uknarhöndu
og lít þú enn til mín.
Eg heyri óm i liljóði
frá helgri náðarlind.
Þú svarar, guð minn góði:
„Eg gef þér enn upp synd.u
0TCatt!w ðochumteon.