Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Blaðsíða 8

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Blaðsíða 8
Iðnaðarmannafélagið f Ruykjavfk 100 ára Aldarafmælis Iðnaðarmannafélagsins í Reykja- vík h. 3. febrúar s.l. var minnst á margvíslegan liátt, glæsilega og eftirminnilega. Sérstök hátíða- nefnd starfaði að undirbúningi hátíðarhaldanna allt frá síðasta vori, en í henni áttu sæti þeir Kristján Skagfjörð, múrarameistari, form., Gísli Olafsson, bakarameistari, Sigurbjörn Guðjóns- son, húsasmíðam., Sæmundur Sigurðsson, málara- meistari og Þór Sandholt, skólastjóri. Ennfremur hafði stjórn félagsins bæði veg og vanda af undir- búningi hátíðahaldanna eins og fram kemur m. a. í því, að haldnir voru 40 stjórnarfundir á síðasta starfsári. Fyrir þrem árum ákvað stjórn félagsins að láta rita sögu félagsins í tilefni aldarafmælisins og var til þess fenginn Gísli Jónsson, menntaskólakenn- ari á Akureyri. Sagan kom út á hundrað ára af- mælinu, allmikil bók, skreytt fjölda mynda, og þykir hafa tekizt mjög vel í alla staði og er höf- undi sínum og útgefendum til sóma í hvívetna. Hátíðahiildin hófus tmeð því, að laugardaginn 28. janúar 1967 kl. 3.30 e. h. var opnuð sýning í máli og myndum úr sögu félagsins í samkomusal Iðnskólans í Reykjavík. Formaður félagsins, Ing- ólfur Finnbogason, opnaði sýninguna með ræðu, þar sem hann rakti í stórum dráttum Iielztu at- riðin í sögu félagsins. Meðal viðstaddra voru for- seti Islands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, iðnaðarmála- ráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík auk um 30 annarra boðsgesta. Sjónvarpað var frá athöfn- inni. Við þetta tækifæri afhenti formaður félags- ins forseta íslands sögu félagsins í skinnbandi, á- letraða, ásamt minnispeningi, sem gerður var vegna afmælisins. Undirbúning sýningarinnar annaðist sérstök nefnd, sem sett var á laggirnar í því skyni, en í henni voru þeir Sigurbjörn Guðjónsson, formað- ur, Guðbjörn Guðmundsson, prentari, og Helgi Hallgrímsson, kennari. Nefndinni til aðstoðar við uppsetningu sýningarinnar var Kjartan Guðjóns- son, listnrálari. Sýningin var opnuð lyrir almenn- ing kl. 6 þennan sama dag og síðan opin næstu daga kl. 5—10 dagiega til 7. febrúar. Á sýningunni var saga félagsins seld og ennfremur minnispen- ingur sá, sem félagið lét gera í tilefni afmælisins. Að kvöldi fimmtudagsins 2. febrúar var flutt dagskrá í Ríkisútvarpinu úr sögu Iðnaðarmanna- félagsins. Undirbúning dagskrárinnar og flutning önnuðust þrír valinkunnir iðnaðarmenn, þeir Gísli Ólafsson, Guðmundur H. Guðmundsson og Ingólfur Finnbogason, Jökull Pétursson, málarameistari. Helgi Hermann Eiriksson. formaður Iðnaðarmannafélagsins. 8 TÍMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.