Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Blaðsíða 23

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Blaðsíða 23
JÖKULL PÉTURSSON, mdlarameistari: OísttaþáffurÍHH Að þessu sinni verða birtar nokkrar vísur, sem oft eru nefndar samkveðlingar, og mun nafngift- in stafa af því, að ýrnist voru tveir höfundar, sem vísuna kváðu, eða að vísurnar voru tvær, og orti þá hvor sína. Oft gerði fólk þetta sér til gamans og d;egra- styttingar, en stundum líka í fullri alvöru, og gat þá verið mjög óvægið, ef svo bar undir. Eitt sinn áttu stúlka og piltur í orðasennu, og sagði þá stúlkan að karlmenn væru svín. Þá kvað pifturinn: Ástartryllta auðalín, orðin stilltu betur þín. Ef við piltar erum svín, ertu gylta, Veiga míu. En þar kom hann ekki að tómum kofunum, því stúlkan svaraði: Þína ef viltu meina mig, mér er skylt að segja: Engin gylta elskar þig, þó ástartryllt sé meyja. Prestur nokkur ljóðaði þannig á stúlku: Ég á hund, rnitt unga sprund, eins og þig í framan. Um aftanstund á grænni grund gæfi ég ykkur saman. Stúlkan svaraði þessu miður prestlega ávarpi þannig: Ég á tík, sem yður er lík í augna- og háralagi, væri hún rík, mér virtist slík vera af sama tagi. Það er sagt að aðeins einu sinni hafi fundum þeirra snillinganna Sigurðar Breiðfjörð og Bólu- Hjálmars borið saman. Var það á Stað í Hrúta- firði, og réði því tilvifjun ein. Var þarna mikill vina-fagnaður, og sátu þeir að sumbli næturlangt og skröfuðu margt um skáldskap, að vonurn. Næsta dag hélt Hjálmar áfram ferð sinni og fylg- ir Sigurður honum úr hlaði. Er þeir höfðu skipst á kveðjum segir Sigurður við Hjálmar: Sú er bónin eftir ein, ei skal henni leyna, ofan yfir Breiðfjörðs bein breiddu stöku eina. Og ekki stóð á svarinu: Ef ég stend á eyri vaðs ofar fjörs á línu, skal ég kögglum kaplataðs kasta að leiði þínu. Var þetta sagt í góðu gamni, enda kvað Hjálm- ar erfiljóð um Sigurð látinn. Prestur nokkur, vel efnaður og mikill fésýslu- maður, varpaði þessari spurningu að kotbónda einum: Hvað er það sem höldar hugsa, háski þegar steðjar að? Karlinn svaraði: Ríkir hugsa um arð og uxa, en aumingjar um sælustað. Sagt er að einu sinni er landpóstur kom inn f þorp nokkurt, hafi mannþyrping verið þar á göt- unni, og eitthvað tafið för hans. Hafi þá póstur- inn átt að segja: Það er vandi að verja sig að verða ei strand á götu . . . Lengra komst hann ekki, því einhver úr hópn- um bætti við: Nú kom andinn yfir þig eins og hland úr fötu. Loks er hér svo hin kunna vísa, sem þeir Bjarni Thorarensen amtmaður og Bólu-Hjálmar gerðu á sínum tíma: Bjarni byrjaði: Hjálmar vís með véla þras að vinum drottins gerir brigzl. Hjálmar svaraði: Kristur stóð fyrir Kaifas, klögumálin gengu á víxl. TÍMARIT IBNAÐARMANNA 25

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.