Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Blaðsíða 34
Arið 1955 hófst svo gegndarlaus innflutningur
á yfirbyggðum vögnum, enda var þá samkeppnis-
aðstaða bifreiðaiðnaðarins íslenzka orðin erfiðari
vegna stórhækkaðs kaupgjalds og verðlags innan-
lands. Gat Bílasmiðjan þá tæpast keppt við er-
lenda aðila, að því er verðlagið snerti, þótt að-
staða fyrirtækisins á sviði vörugæða og vöndunar
hefði alltaf verið örugg og væri enn. Þessi breyt-
ing varð til þess, að næstu fjögur ár urðu hin erf-
iðustu á aldarfjórðungs starlsferli Bxlasmiðjunn-
ar, svo að jafnvel kom til orða um eitt skeið, að
fyrirtækið hætti starfsemi sinni á sviði bifreiða-
smíða. En þótt horfur væru um tíma óvænlegar,
svo ekki væri meira sagt, var samt ákveðið að
þrauka.
En jafnframt því, sem ákveðið var að láta ekki
bugast, þótt erfiðleikarnir virtust óviðráðanlegir,
var hafizt handa um að búa betur í haginn fyrir
fyrirtækið í trausti þess, að lxjartari og betri tímar
færu í hönd. Var þá byijað á mikilli byggingu að
Laugavegi 176. Fyrirtækið hafði sótt um lóð —
einn hektara — alllöngu áður, en fékk loks 4300
fermetra, og í janúar 1955 var hafizt handa um
framkvæmdir á hinum nýja stað. Það var reist
margfalt stæria hús en fyrirtækið hafði haft til
afnota að Skúlatúni 4.
Fyrirtækið var búið að koma sér fyrir í hinum
nýju húsakynnum fyrir nokkru, þegar horfur
fóru að vænkast, því að í október 1959 gerði
Reykjavíkurbær pöntun á yfirbyggingum í fimm
strætisvagna. Var þessi pöntun sérstaklega mikil-
væg fyrir þær sakir, að þar senr svo nrargra sanrs
konar yfirbygginga var óskað í semr, gerði það
Bílasmiðjunni kleift að endurskipuleggja starf-
senri sína í öllunr meginatriðum. Til dæmis var
þá lrægt að hverfa frá tréyfirbyggingum, sem þá
liöfðu tíðkast, og taka upp stályfirbyggingar, en
jafnframt voru gerðar ýnrsar aðrar breytingar á
rekstrinum til hagsbóta fyrir viðskiptaviniira.
Þetta hafði í för með sér, eins og gert var ráð
fyrir, að hægt var að lækka verð á yfirbyggiirgum,
svo að hinar innlendu urðu þá 18—40% ódýrari
eir erleirdar, og má segja, að sjá megi nrinna grand
í mat sínum.
Við þetta breyttust viðlrorfin gersanrlega á ný,
því að nú varð aftur miklu lragkvæmara fyrir
eigendur almemringsvagna að láta smíða ylir þá
hér á lairdi í stað þess að flytja inn yfirbyggða
34
TIMARIT lOXAHARMANXA