Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Blaðsíða 11

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Blaðsíða 11
merkjanna og gerði tillögur um hverjir skyldu liljóta þau. Afhending merkjanna hafði þegar farið fram. Að lokinni ræðu formanns tók formaður hátíð- arnefndar, Kristján Skagfjörð, við stjórn atliafn- arinnar. Tóku nú ýmsir gesta til máls og ávörp- uðu afmælisbarnið og færðu því gjafir. Fyrstur tók til máis Vigfús Sigurðsson, forseti Landssambands iðnaðarmanna. Hann flutti kveðjur og árnaðaróskir frá þeirn samtökum og afhenti félaginu að gjöf áletraðan silfurdisk með merki Landssambandsins. Ennfremur ávarpaði hann félagið í nafni Iðnaðarbanka íslands og af- henti frá bankanum sérkennilega og mjög vel gerða bréfpressu. Formaður Iðnráðs Reykjavíkur, Gísli Ólafsson, flutti árnaðaróskir frá Iðnráðinu og ennfremur frá Landssambandi bakarameistara og Bakara- meistarafélagi Reykjavíkur. Þór Sandholt ,skólastjóri Iðnskólans í Reykja- vík, afhenti gjöf frá skólanum, en það voru teikn- ingar eftir Halldór Pétursson af gamla Iðnskól- anum við Lækjargötu, innbundnar í fallega möppu. Grímur Bjarnason, formaður Meistarasam- bands byggingamanna, í Reykjavík, flutti kveðj- ur og góðar óskir frá sambandsfélögum Meistara- sambandsins og afhenti útskorinn veggskjöld úr lmotu með mynd af gamla Iðnskólahúsinu. Skjöldinn gerði Ríkharður Jónsson. Gunnar Friðriksson, forstjóri, formaður Félags íslenzkra iðnrekenda, flutti kveðjur irá félagi sínu og færði Iðnaðarmannafélaginu að gjöf afsteypu af listaverki Ásmundar Sveinssonar, „Veðurspá- manninum". Sigurður Kristinsson, formaður Iðnaðarmanna- félagsins í Hafnarfirði, færði félaginu að gjöf skinnmöppu nreð skrautrituðum ávörpum frá liverri einstakri deild innan félagsins. Haraldur Ágústsson, kennari við Iðnskólann í Reykjavík ,færði félaginu ljósmynd af heiðurs- félagsskjali Jóns Guðmundssonar, sem kjörinn var heiðursfélagi árið 1877 og var einn at' fyrstu heiðursfélögum félagsins. Sveinbjörn Jónsson forstjóri Ofnasmiðjunnar hf. afhenti litaða ljósmynd af Akureyri og um- hverli frá Iðnaðarmannafélagi Akureyrar. Texti með mynd á síðu á móti: Efsta röð frá v.: Jón E. Ágústsson, 'málaram.; Sigurður Krist- insson, málarameistari; Sveinbjörn Jónsson, forstjóri; Gisli Ólafsson, bakarameistari; Þór Sandholt, skólastjóri; Guðmund- ur H. GuÖmundsson, húsgagnasm.m.; Kristján Skagfjörð, múr- arameistari; Gunnar I. Friðriksson, forstjóri; GuÖmundur Þór Pálsson, arkitekt. — Ljósm.: Þórir H. Óskarsson. Geir Hallgrimsson, borgarstjóri, flytur ávarp. A myndinni ber hann keðjuna, sem stjórn Iðnaðarmannafélagsins frerði lionum. Jón E. Ágústsson, málarameistari, varaformað- ur félagsins, flutti félaginu árnaðaróskir frá stjórnarmönnum og afhenti sem gjöf frá þeim veggskjöld úr leir, en í hann voru brennd nöfn allra formanna félagsins frá upphafi. Guðmundur Þór Pálsson, arkitekt, flutti kveðj- ur frá Félagi arkitekta á íslandi. Valtýr Snæbjörnsson frá Iðnaðarmannafélagi Vestmannaeyja afhenti málverk af Vestmanna- eyjum sem gjöf frá félaginu. Loks talaði Gísli Jónsson, menntaskólakennari frá Akureyri, höfundur „Sögu Iðnaðarmannafé- lagsins 1867—1967“, og þakkaði félaginu marg- víslegan sóma, sem honum lrafði verið sýndur. Að síðustu sagði Guðmundur H. Guðmunds- son nokkur orð. Að loknum þessum Jrætti hátíðahaldanna færðu gestir sig að veizluborðum í Súlnasal. Borð voru öll blómum skreytt, ennfremur voru litlir borð- fánar úr silki með merki félagsins á öllum borðum og einnig öskubakkar úr leir með merki félagsins og ártölunum 1867—1967. Öskubakkar þessir voru ætlaðir kvengestum sem gjöf frá félaginu til TÍMARIT IöNAfiARMANNA 1 1

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.