Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Side 19

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Side 19
B R A G I HANNESSON, bankastjóri: Starfsemi lánastofnana iðnaðaríns árið 1966 Aðalfundur Iðnaðarbanka íslands hf. var hald- inn í samkomuhúsinu Lídó laugardaginn 1. apríl s.l. Fundinn sóttu um 250 lduthafar, og meðal viðstaddra voru Jóhann Hafstein, iðnaðarmála- ráðherra og Geir Hallgrímsson, borgarstjóri. Sveinn B. Valfells, formaður bankaráðs flutti skýrslu bankaráðs um starfsemi bankans síðast- liðið starfsár. Bankastjórarnir Bragi Hannesson og Pétur Sæmundsen, lögðu fram og skýrðu reikn- inga Iðnaðarbankans og Iðnlánasjóðs. Fundar- stjóri var Tómas Vigfússon, húsasmíðameistari og fundarritari Ástvaldur Magnússon, deildar- stjóri. Starfsemi Iðnaðarbankans jókst mikið á árinu. Nýtt útibú tók til starfa í október að Háaleitis-i braut 60, og er forstöðumaður þess Helgi Elías- son, sem var deildarstjóri í innheimtudeild aðal- bankans. Innstæður í sparisjóði hækkuðu verulega á ár- inu eða um 103,9 millj. kr. og í hlaupareikningi um 20,5 millj. kr. og nemur þá heildarinnláns- aukning 124,4 millj. kr. eða 30,21%. Heildarinn- lánsfé Iðnaðarbankans um áramótin var 536 millj. kr. Um stofnun nýrra reikninga er það að segja ,að í aðalbanka voru stofnaðir 1400 nýir reikningar, á Akureyri 840, í Halnarfirði 534 og í Grensásútibúi 278 reikningar eða samtals 3052. Víxlaeign bankans í heild jókst um 47 millj. kr. en fjöldi keyptra víxla var samtals 39.774 stk. Lán í hlaupareikningi uxu um 12,8 millj. kr. og verðbréfaeign óx um 26,8 millj. kr. Meginhluti þeirrar hækkunar stalar af Jrátttöku Iðnaðarbank- ans eins og annarra banka í fjáröflun til fram- kvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar, en 10% af innlánsaukningunni fór í Jiessi verðbréfakaup s.l. ár. Þá var 6,7 millj. kr. af lausaskuldum breytt í föst lán skv. heimild í lögum og reglugerð um það efni. Samtals nam Jrá útlánaaukningin 86,7 millj. kr. eða 24,87% á móti 58 millj. kr. árið áður og 19,98% aukningu. Innstæða í Seðlabankanum óx um 26,9 millj. kr. aðallega vegna innstæðubindingar. Var Jrá bundið fé í Seðlabankanum um áramót 96 millj. kr. Rekstrarafkoma bankans s.l. ár var heldur verri en árið áður, en reksturskostnaður var nú 14,4 millj. kr. Tekjuafgangur var 2 millj. kr. í vara- sjóð voru færðar 440 þús. kr., jafnframt því sem aðalfundurinn samþykkti að greiða ekki arð að J^essu sinni, en færa 1 millj. kr. af óráfstöfuðum tekjuafgangi í varasjóð. Er þá varasjóður kominn í 11 millj. kr. Afskrifað var af húsbúnaði 578 Jrús. kr. Orsakir verri rekstursafkomu bankans s.l. ár miðað við 1965 eru m. a. Jxer, að í ársbyrjun 1966 varð 1% vaxtahækkun, sem kom að sjálfsögðu strax á innlánin, en ekki á þegar framkvæmd útlán. Þá má minna á fjárfestingu í hinum nýju útibúum og vaxtakjör af bundnu fé í Seðlabanka. Þjónustustörf Iðnaðarbankans hafa aukizt ár frá ári. Er hlutur innheimtudeildar þar mestur, en á s.l. ári námu innheimtur af víxlum oa o skuldabréfum alls 96,3 millj. kr. þar af innlagt á reikninga 79,5 millj. kr., en árið áður 51,2 millj. kr. Ábyrgðir vegna viðskiptamanna lækkuðu um 13,9 millj. kr. og stafar sri lækkun aðallega af Jiví, að ábyrgð vegna Iðngarða hf. gekk út á árinu. Staða Iðnaðarbankans gagnvart Seðlabankan- um var góð á s.l. ári og um áramót var innstæða 2 millj. kr. á viðskiptareikningi. Um útibú Iðnaðarbankans er Jrað að segja að starfsemi þeirra allra gengur með ágætum og útibúin í Hafnarfirði og á Akureyri hafa náð Jrví innlánsfé að rekstur Jreirra ber sig. Um mán- aðarmótin maí—júní námu innstæður í þeim Jiessum fjárhæðum: Á Akureyri 47,6 millj. kr., í Hafnarfirði 47,4 millj. kr. og í Grensásútibúi 15 millj. kr. Iðnaðarbankinn á húsnæði Jrað, sem Akureyr- TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 19’

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.