Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Síða 41

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1967, Síða 41
á skrifstofu Sænska iðnsambandsins og hitti þar ýmsa af fyrirmönnum sambandsins. Ræddi ég við ýrnsa starfsmenn sambandsins og kynnti mér störf þeirra. Næstu daga heimsótti ég ýrnis félög iðnaðar- manna og stofnanir, sem aðsetur hafa í Stokk- hólmi. Þessi félög voru Málaremástarnas Rikis- förening (Sænska málarameistarasambandið), Elektriska Installatörsorganisationen EIO (Sænska rafverktakasambandið), Sveriges Ur- makare- och Optikerförbund (Sænska Úrsmíða- sambandið) og Svenska Frisörföreningen (Sænska hárgreiðslumeistarafélagið) en stofnanirnar voru Smáindustriens Exportbyrá, Stockholms Stads och Láns Företagareförening og Statens Institut för Hantverk och Industri. Sænska málarameistarasambandið starfar fyrst og fremst sem vinuveitendasamtök og annast gerð kjarasamninga við sveina o. s. frv. og aðstoðar meðlimina í slíkum málum. Sambandið hefur mikil afskipti af fræðslumálum málarastéttarinn- ar og rekur áróður fyrir því að fólk noti faglærða málara og láti mála hjá sér á vetrum ekki síður en á sumrin til þess að koma í veg fyrir tímabundið atvinnuleysi lijá stéttinni. Athyglisvert er jrað fyrirkomulag á greiðslu orlofs til sveina, að meist- ararnir greiða það í sérstakan orlofssjóð, þar sem léð liggur á vöxtum og kemur ekki til útborgunar fyrr en eigandi þess fer í sumarfrí. Vöxtunum af orlofssjóðnum skipta sveina- og meistarasam- böndin á milli sín til helminga og er um að ræða ótrúlega liáar upphæðir, svo skiptir hundruðum þúsunda sænskra króna á ári. Þessu fé er fyrst og frernst varið til fræðslumála og til áróðurs og aug- lýsinga fyrir stéttina í heild. Rafverktakasambandið rekur mikla sameigin- lega þjónustu fyrir meðlimi sína og margs konar leiðbeiningastarfsemi. Það hefur gengist lyrir út- gáfu staðlaðra útboðslýsinga á raflögnum og raf- lagnaefni, en að því er geysilegt hagræði bæði fyr- ir verktaka og byggingariyrirtæki, enda hafa slík- ar staðlaðar útboðslýsingar verið teknar upp í flestum greinum byggingariðnaðarins í Svíþjóð. Úrsmiðasambandið rekur mikla auglýsinga- starfsemi þar sem almenningur er hvattur til að beina viðskiptum til hinna faglærðu meðlima fé- lagsins, en Jreir auglýsa allir undir sameiginlegu merki, sem er orðið vel Jrekkt. Félagið kappkostar að lialda upp háum faglegum staðli (standard) og brjóti félagsmaður siðareglur félagsins er honum vikið úr félaginu og sviptur rétti til Jress að nota merki jtess. Ennfremur reka félagsmenn gagn- kvæma ábyrgðarstarfsemi og hafa með sér sam- starf á fleiri sviðum, sem er mjög til fyrirmyndar. Hárgreiðslumeistarafélagið er eitt fjölmennasta iðnfélag Svíþjóðar með 8—9000 meðlimum. Það á fallega, nýlega byggingu í Bromma í Stokk- hólmi, Jjar sem Jjað hefur skrifstofur sínar og fag- skóla, sem það rekur. Þar eru halclin fjölmörg námskeið fyrir sveina og meistara en ennfremur gengst félagið fyrir mikilli kynningarstarfsemi meðal félagsmanna, þar sem kynntar eru nýjar tízkur í hárgreiðslu karla og kvenna. Loks gengst félagið fyrir hárgreiðslusamkeppnum innanlands og meðlimir þess taka Jrátt í sams konar keppnum erlendis. Smáindustriens Exportbyrá er stofnun, sem rekin er fyrir opinbert fé og veitir litlum iðnfyrir- tækjurn, sem hefja útflutning, margháttaða að- stoð. Aðstoðin er allt frá Jrví að annast erlendar bréfaskriftir til lánsfjárútvegunar vegna útflutn- ingsframleiðslu og aðstoð við jDátttöku í erlendum iðnsýningum. Sænska iðnsambandið hefur náið samstarf við þessa stofnun og tilnefnir m. a. full- trúa í stjórn hennar. Nánar er skýrt frá starfi þeirra annarra stofn- ana, sem ég heimsótti í Stokkhólmi, í skýrslu minni um starfsemi Sænskra iðnsambandsins og því óþarft að rekja Jjað hér. Næst síðasta daginn sem ég var í Stokkhólmi komu framkvæmdastjórar iðnsambandanna í Noregi og Danmörku til Stokkhólms og héldum við Jrar framkvæmdastjórafund, þar sem skipzt \'ar á ýmsum upplýsingum um starfsemi samband- anna og framgang ýmissa baráttumála þeirra. Slíkir fundir eru haldnir öðru hverju, þegar vel stendur á, og eru að nrörgu leyti mjög gagnlegir. Áður en ferðinni var haldið áfram til Kaup- mannahafnar, lagði ég nokkra lykkju á leið mína og hélt til Þýzkalands og var þar í nokkra daga. Þaðan hélt ég áfram til Genfar, en dagana 28. október til 3. nóvenrber var haldinn þar lraust- fundur Alþjóða-iðnsambandsins (Internationale Gewerbeunion), og h. 4. nóv. hélt Alþjóðasanr- band iðnaðarmanna (Internationale Eöderation des Handrverks) aðalfund sinn, en Jrað er deild í IGU. Frá Norðurlöndunr var að Jressu sinni mætt fjölmennari sendinefnd en nokkru sinni fyrr, Jr. e. formenn sambandanna í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og framkvæmdastjórar danska, norska og íslenzka sambandsins. Fram að Jressu liafa öll Norðurlöndin senr lreild verið aðili að aljrjóða- samböndunum en nú hefur orðið sú breyting, að Noregur og Svíþjóð hafa hvort urn sig sjálfstæða aðild en hin Jrrjú Norðurlöndin eru sameiginlegir meðlimir í gegnum Norræna iðnráðið. Frá Genf var flogið til Kaupmannahafnar og Jrar dvalizt í eina viku. Þar heimsótti ég m. a. Iðnaðarmannafélagið í Kaupmannahöfn, gamalt og virðulegt félag, sem um margt minnir á Iðn- TÍMARIT lUNAirARMANNA 41

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.