Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Side 12
Ég mun hér á eftir víkja að nokkrum þáttum í
starfsemi Landssambandsins frá síðasta Iðnþingi
til þess að skýra þetta nánar.
Landssambandið hefur komið sér upp salni
upplýsinga um hvers konar atriði, er áhrif hafa á
þróun efnahags- og atvinnumála all langt aftur í
tímann. Sérstaklega hefur verið safnað upplýsing-
um um alla iðnaðarstarfsemi í landinu og aðra
atvinnustarfsemi, þannig að hægt sé að bera sam-
an þróun iðnaðarins við þróun annarra atvinnu-
vega. Má fullyrða að Landssambandið standi nú
ekki verr, og jafnvel betur að vígi, en önnur hlið-
stæð samtök hér á landi hvað varðar nauðsynleg-
ar upplýsingar, til að styðja kröfur sínar og stefnu
í þeim málefnum, sem samtökin vilja hafa áhrif
á. Má t. d. nefna að Landssambandið hefur látið
tölvuvinna fyrir sig sérstaka sundurliðun á iðn-
aðarkafla Slysatryggingaskrárinnar, sem er aðal
heimild Hagstofunnar og annarra opinbeiTa
stofnana um mannafla hinna ýmsu atvinnu-
greina. Hefur Landssambandið að þessu leyti
betri upplýsingar um mannafla í iðnaði hér á
landi en nokkur annar aðili hérlendis og hefur
þráfaldlega látið opinberum stofnunum, sarntök-
um og öðrum aðilum í té ýmsan fróðleik í þessu
sambandi.
Á undanförnum árurn hefur verið gerð athug-
un á ýmsum iðngreinum hér á landi. Iðnþróunar-
sjóður hefur átt frumkvæðið að flestum þessum
athugunum, sem gerðar hafa verið í samráði við
iðnaðarráðuneytið. Landssambandið hefur jafn-
an átt fulltrúa í nefndum, sem ýmist hafa fylgst
með athugunum eða unnið að framkvæmd til-
lagna þeirra í Jjeim greinum, sem eru á hags-
munasviði Landssambandsins. Hins vegar hefur
sambandið ekki fyrr en nú haft starfskraft til þess
að taka þátt í slíkum iðngreinaathugunum og
þess vegna ekki getað haft þau áhrif á sjálfa vinn-
una sem skyldi.
Þetta framtak Iðnjmóunarsjóðs er mjög lofsvert
og ber að þakka, en af eðlilegum ástæðum nær
það aðeins til tiltölulega takmarkaðs hluta iðn-
aðarins. Þar sem litlir tilburðir hafa verið uppi
um það að opinberir aðilar létu framkvæma slík-
ar athuganir á breiðum grundvelli, hyggst Lands-
sambandið bæta þarna úr. Auk þess hyggst það
leggja skerf til, eða fylgjast vel með slíku fram-
taki hjá öðrum, sé J^ess óskað.
Starfsmenn Landssambandsins hafa í samræmi
við þetta hafið þetta starf og gert athugun á iðn-
greininni brauð- og kökugerð, J^ar sem settar hafa
verið fram tillögur um hvað gera þurfi í Jæssari
grein til þess að hún haldi velli í sífellt aukinni
samkeppni.
Einnig tók Landssambandið ásamt Iðnþróun-
arstofnun Islands, Rannsóknastofnun iðnaðarins
og Sambandi málm- og skipasmiða, Jíátt í athug-
un þeirri á skipasmíða- og skipaviðgerðaiðnaðin-
um, sem unnið hefur verið að á undanförnum
mánuðum.
í kjölfar athugana á einstökum iðngreinum
eða í tengslum við almennar iðnþróunaráætlanir,
sem gerðar hafa verið hér á landi á undanförnum
árum, hafa ekki ósjaldan fylgt aðgerðir, sem hafa
haft að markmiði liagræðingu innan fyrirtækja
eða í viðkomandi iðngreinum. Aðgerðir þessar
liafa oftast verið studdar af sjóðurn Jreim, sem
veita styrki í skipulögð hagTæðingarverkefni í
fyrirtækjahópum eða iðngreinum, og ber Iðn-
Jnóunarsjóð Jjar hæst. Hafa J^au verið skipidögð
og þeim stýrt af hagsmunaaðilum (oft samtökum)
og sjóðum og gjarnan hafa aðkeyptir ráðgjafar
verið fengnir til að leysa af hendi sjálfa vinnuna.
Landssambandið hafði til skamms tíma líti’
sem engin afskipti af veikefnum af Jressu tagi,
önnur en aðild að nefndastarfi. Með ráðningu
vel menntaðra starfskrafta hafa nú skapast góðir
möguleikar á Jrátttöku í slíku starfi, auk Jress
sem Landssambandið mun smám saman geta
unnið algerlega sjálfstætt á þessu sviði og ef það
Jiykir æskilegt veitt beina ráðgjöf og tækniaðstoð
sjálft.
Landssambandið hefur skipulagt og haft frum-
kvæði að einu hagræðingarverkefni og átt með-
aðild að fleirum.
Mörg verkefni af J^essu tagi eru framundan.
Meðal annars hefur verið undirbúið J^róunar-
verkefni í byggingariðnaði, er hafa Jrað að mark-
miði að taka til athugunar hvernig megi auka af-
köst byggingariðnaðarins og hvaða aðferðir til
Jress muni falla best að þörfum byggingariðnaðar-
ins og byggjendanna.
Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning og
skipulagningu fræðslufunda og hefur starfið mið-
ast að því að reyna að finna hvar þörfin fyrir
fræðslu er mest og á hvaða sviðum. Öllum fyrir-
tækjum innan Landssambandsins hefur verið
boðið að fá til sín fræðslufundi um ýmsa þætti
fyrirtækjareksturs, svo sem áætlanagerð, bókhald,
stjórnun og svo mætti lengi telja. Allmargir fund-
ir hafa verið haldnir. Eru J^eir ýmist skipulagðir
á þann hátt, að Landssambandið útvegar utanað-
komandi leiðbeinendur og fyrirlesara eða að
starlsmenn sambandsins sjá um fræðsluna sjálfir.
Á Jrví sem hér að framan hefur verið sagt má
sjá, að Landssamband iðnaðarmanna beinir ekki
spjótum sínum að hinu opinbera, heldur reynir
að hafa áhrif á Jrað, sem Jdví Jrykir að umbóta Jaurfi
við innan fyrirtækjanna.
Á því Iðnþingi, sem nú er að hefja störf, verða
6
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA