Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Qupperneq 13

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Qupperneq 13
að vanda tekin fyrir mörg af brýnustu hagsmuna- málum iðnaðarins, sem ástæða væri til að fjalla um sérstaklega, en til þess gefst ekki tími nú. Ég vil þó taka út úr og gera að umræðuefni eitt það mál, sem fyrir þinginu liggur, en það eru drög að ályktun um iðnaðarstefnu og iðnþróun. Ef til vill væri þó réttara að tala fremur um stefnuna í upp- byggingu atvinnulífsins í heild, því það er skoð- un stjórnar Landssambands iðnaðarmanna, að ekki verði svo fjallað um þróun iðnaðar og iðn- aðarstefnu, að ekki komi þar inn í myndina þró- un annarra atvinnuvega. Og í beinu framhaldi, að ekki verði framkvæmd iðnaðarstefna, sem ger- ir ráð fyrir að mismuna einstökum iðngreinum á grundvelli vafasamra skilgreininga á því, hvað sé samkeppnisiðnaður og livað ekki. Hér má segja að komið sé að kjarna málsins að því er varðar þá tilfögu, sem íyrir jressu þingi liggur, en þar er einmitt lögð áhersla á að leggja beri nýtt mat á mikilvægi einstakra greina iðnaðar, þar sem tekið sé mið af allri atvinnustarfsemi í landinu. Mönnum er ljóst, að iðnaðurinn verður að gegna vaxandi hlutverki í atvinnuuppbyggingu á íslandi, því í önnur hús er ekki að venda. Stærsta skrefið í þá átt var stigið með inngöngunni í EFTA og með samningum við EBE. Með því var í verki viðurkennt að iðnaður ætti miklu hlut- verki að gegna á íslandi um ókomna tíð. Ég hygg, að yfirgnæfandi fjöldi aðila innan Landssambands iðnaðarmanna liafi fagnað því að þetta skref var stigið. Ég held líka, að flestir séu enn sama sinnis, þó hætt sé við, að sá árangur sem náðst hefur sé mun minni en vænst var við byrjun þessa áratugs, þegar litið var með bjart- sýni fram til tíu ára aðlögunartímans, sem nota átti til að byggja upp og efla íslenskan iðnað. Vel má vera að bjartsýnin hafi verið of mikil, en ég vil á engan liátt telja að hún hafi verið til skaða, né heldur vil ég gera of lítið úr þeim árangri, sem náðst hefur, það hefur óneitanlega talsvert miðað fram á við. Hinu er þó ekki að neita, að talsvert skiptar skoðanir eru um það hvernig vinna beri að efl- ingu íslensks iðnaðar, ég vil jafnvel gerast svo djarfur að segja, að menn virðast ekki sammála um hvað teljist til iðnaðar og livað ekki. Ég hef sagt það áður, og mun endurtaka það hér og svo oft sem mér þykir þurfa, að ég tel óger- legt að byggja upp íslenskan iðnað á grundvelli mismununar í aðstöðumálum á þann liátt, að draga línu milli þeirra greina sem lenda í beinni samkeppni við EFTA-vörur og hinna sem þar standa fyrir utan. Hvort tveggja er, að þarna er óhægt að greina í milli, þar sem iðngreinamar eru ekki afmarkaðar og sjálfstæðar heildir, held- Stig Stejanson, jormaður sœnska Iðnsambandsins og Norrœna Iðnþingsins flytur ávarp. ur eru hver annarri háðar um viðskipti og þjón- ustu, en að auki getur það varla hafa verið ætlun- in, að inngangan í EFTA og samningar við EBE yrðu þeim greinum einum til gagns, sem þá lentu í beinni samkeppni á erlendum mörkuðum og hér heima. Þvert á móti vona ég að sá skilningur minn sé réttur, að með samningum hafi verið stigið skref til eflingar alls iðnaðar á ístlandi, en ekki lítils hluta hans. Margar skýrslur og áætlanir hafa verið samdar um iðnað og iðnþróun, þar sem höfuðáhersla hefur verið lögð á aðgerðir í málefnum þeirra greina, sem opinberir aðilar hafa skilgreint sem samkepnisgreinar iðnaðar. Einkennist þar flest af varnaraðgerðum til að koma í veg fyrir hrun þessara greina vegna áhrifa lækkandi tolla. Á aðr- ar greinar er varla minnst, nema þegar sýna á fram á stærð iðnaðarins og verðmætasköpun í heild. Úrbætur á aðstöðumálum þeirra virðast taldar óþarfar og afkoma þeirra virðist aukaati'- iði. Ég er t. d. ekki sannnála því að tala um iðnað sem einungis 9 greinar „samkeppnisiðnaðar“ og 5 greinar „útflutningsiðnaðar“ eins og gert er í TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.