Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 16
Laue Smidt, framkvœmdastjóri Handvœrksrádet i Danmörku,
flytur kveðjur.
iðnaðarmannsins er fjölbreyttur og mikill í at-
vinnulífi staðarins og þýðingarmikill þáttur í
uppbyggingu atvinnulífsins og ekki síst í því að
skapa atvinnuöryggi.
Einn megintilgangur íslenskrar iðnkynningar
er að hvetja íslenska stjórnmálamenn og aðra
áhrifaaðila til þess að búa betur að iðnaðinum,
taka aukið tillit til hans og vinna að eflingu hans.
Iðnkynningin hefur beitt sér fyrir að þau samtök,
sem að henni standa, lrefðu með sér sem besta
samvinnu og komi opinberlega fram sem einn
aðili. Það hefur verið íslenskunr iðnaði mikill
styrkur að þetta hefur verið gert og að samtökin
lrafa komið sameiginlega fram gagnvart opinber-
um aðilum og knúið sameiginlega á um ýmsar
úrbætur í málefnum er varða starfsskilyrði iðn-
aðarins.
Ég lýsi ánægju minni með Iðnkynninguna og
vil þakka öllum sem þátt hafa tekið í að skapa
þá hugarfarsbreytingu, sem telja má að orðið
hafi. En vil jafnframt benda á, að hér á ekki að
vera um stundarfyrirbæri að ræða. Iðnaðarmenn
liver og einn verða að fylgja með, skoða sjálfa sig
og gagnrýna, endurbæta og skipuleggja, og um-
fram allt vanda sitt verk.
Um síðustu áramót má segja að skammt hafi
verið milli stórtíðinda á sviði aðstöðumála iðnað-
arins. Lögð var fram og samþykkt ný tollskrá, sem
ég vil telja að marki að rnörgu leyti tímamót varð-
andi stefnuna í tollamálum, en þar á ég við stig-
lækkandi tolla af efni til bygginga og lagfæringu
ýmis konar misréttis varðandi toll af aðföngum til
iðnaðar. Enn eru þó mörg óleyst vandamál og
misrétti á sviði tollamála, sem þarfnast leiðrétt-
inga og vil ég þar sérstaklega tilnefna málmiðn-
aðinn í því sambandi.
Um síðustu áramót var einnig lagt fram nýtt
skattalagafrumvarp og samtökin ferigu til skoð-
unar drög að frumvarpi til nýrra verðlagslöggjaf-
ar. Þessi mál eru bæði óafgreidd enn. Um þau
hefur verið fjallað af stjórn Landssambandsins,
sem lagt hefur fram sínar tillögur í formi um-
sagna og þau eru hér til umræðu á þessu Iðnjnngi,
sem móta mun stefnu okkar næstu tvö árin.
Mörg fleiri mál mætti nefna, sem hér verða
tekin fyrir og snerta iðnaðinn í heild, svo og innri
málefni Landssambandsins sjálfs, en ég læt hér
staðar numið og óska að Iðnþingi megi takast að
afgreiða þau margvíslegu mál, sem fyrir það eru
lögð af víðsýni og marki, þannig nokkur spor
fram á við þjóðinni til farsældar.
Ég vil að lokum þakka öllum þeim, sem unnið
hafa að undirbúningi þessa Iðnþings.
37. Iðnþing ísfendinga er sett.
Meistarafélag iðnaðarmanna í Ilafnarfirði
sendir félögum sínum og viðskiptavinum
bestu jóla- og nýársóskir
og þakkar viðskiptin á líðandi ári
10
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA