Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Side 21

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Side 21
37. Iðnþing Islendinga 37. Iðnþing íslendinga var haldið á Akureyri dagana 25. til 27. ágúst 1977. Sigurður Kristinsson, forseti Landssambands iðnaðarmanna, setti þingið í Borgarbíó kl. 10.30 f. h. þann 25. ágúst. Mikið fjölmenni var við þingsetninguna, en meðal gesta var iðnaðarráðherra, forsvarsmenn norrænu iðnsambandanna, alþingismenn, bæjar- fulltrúar ,fulltrúar ýmissa innlendra stofnana og lélaga, auk þingfulltrúa og maka þeirra. í upphafi setningarræðu sinnar minntist for- seti fyrrverandi iðnþingsfulltrúa, sem látist höfðu frá því síðasta Iðnþing var lialdið, jieirra: Adolps Björnssonar rafveitustjóra, Sauðárkróki; Árna Guðmundssonar bakarameistara, Reykjavík; Indriða Helgasonar rafvirkjameistara, Akureyri; Ólafs Guðmundssonar húsgagnasmíðameistara, Reykjavík og Marselíusar Bernharðssonar skipa- smíðameistara, ísafirði. Þingfulltrúar risu úr sæt- um í virðingarskyni við hina látnu iðnþingsfull- trúa. Því næst ræddi forseti Landssambandsins um þróun efnahagsmála s.l. tvö ár og starfsemi Lands- sambandsins. Ræða forseta er birt í heild hér í Tímaritinu. Að setningarræðu forseta lokinni, ávarpaði iðn- aðarráðherra, Gunnar Thoroddsen, Iðnþingið. í ræðu sinni rakti ráðherra þróun helstu mála að undanförnu. Ræða hans er birt í heild hér í blað- inu. Þá flutti Stig Stefanson, formaður Norræna Iðnráðsins og formaður sænsku samtakanna kveðjur og lýsti ánægju sinni með samvinnu sam- takanna á Norðurlöndum. Þá flutti forseti norsku samtakanna, Finn Gul- brandsen, blikksmíðameistari, kveðjur frá norsku samtökunum og að síðustu flutti framkvæmda- stjóri dönsku samtakanna, Laue Traberg Smidt, kveðjur og árnaðaróskir Dana til Iðnþingsins. Þessu næst var kjörbréfanefnd kosin. Eftirtald- ir voru kjörnir í nefndina: Sverrir Hallgrhnsson, Garðabæ, formaður, Garðar Hinriksson, Reykjavík, Kristinn Kristinsson, Reykjavík, Ólafur Erlingsson, Sandgerði, Sigríður Bjarnadóttir, Reykjavík. Fleira gerðist ekki og var iðnþingsfulltrúum og gestum boðið til hádegisverðar í boði bæjarstjórn- ar Akureyrar. Kl. 14 s.d. setti forseti Landssambandsins fyrsta ])ingiuruliim í Iðnskóla Akureyrar. Fyrsta mál á dagskrá fundarins var kosning þingforseta og annarra starfsmanna Jiingsins. Til- laga um Ingólf Jónsson byggingameistara, Akur- eyri sem þingforseta var samþykkt einróma. Tók hann nú við stjórn og bauð þingfulltrúa og maka þeirra velkomna til Akureyrar og kvaðst vonast eftir góðri samvinnu við afgreiðslu mála. 1. vara- forseti var kosinn Sveinn Sæmundsson blikk- smiðameistari, Kópavogi, og 2. varaforseti Egill Jónsson tæknifræðingur, Keflavík. Ritarar voru kjörnir þeir Skúli Sívertsen, Vestmannaeyjum og Ólafur Jónsson, Reykjavík. Ráðnir sem þingrit- arar voru tveir af starfsmönnum Landssambands- ins, þeir Guðmundur Bárðarson og Hannes Guð- mundsson. Þá fór fram kjör nefnda og voru þær þannig skipaðar: TÍMARIT IÐNAÐARMAN NA 15

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.