Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 23
Ályktun um fjárveitingar til iðnaðar
Samþykkt samhljóða.
Ályktun um útlán viðskiptabankanna
Gerðar voru nokkrar breytingar á ályktuninni
sem kom frá nefndinni, en þvínæst var ályktunin
samþykkt samhljóða.
Ályktun um afurðalán
Samþykkt samhljóða með breytingum nefndar-
innar.
Ályktun um fjárfestmgalánasjóði
Nefndin lagði fram nýja ályktun og eftir
nokkrar umræður og breytingar var ályktunin
samþykkt samhljóða.
Ályktun um óbeina skatta og opinberar álögur
Var samþykkt óbreytt.
Ályktun um verðlagsmál
Gerðar voru breytingar á ályktuninni, en síðan
samþykkt samliljóða.
Ályktun um skattamál
Samþykkt samhljóða með breytingum.
Álylitun um tollamál
Hér kom fram tillaga að viðbótargrein, og eftir
að nefndin hafði endurskoðað og endurorðað
breytingartillöguna var ályktunin samþykkt sam-
hljóða.
Auk framsögumanna tóku þátt í umræðum
Pétur Sæmundsen og Sigurðnr Már Helgason.
Næst var gerð grein fyrir störfum allsherjar-
nefndar og var Sveinn S. Hannesson framsögu-
maður. Rakti Sveinn þær breytingar, sem nefndin
lagði til að gerðar yrðu á þeim drögum, sem voru
lögð fram.
Ályktun um ið?iaðarstef?iu og iðnpróun
Samþykkt með breytingum nefndarinnar.
Ályklun um útflutnings- og markaðsmál
Fyrir utan breytingar nefndarinnar komu fram
breytingatillögur frá Sigurðu Má Helgasyni, sem
var felld, og frá Pétri Sæmundsen. Með breyt-
ingum nefndarinnar og Péturs var ályktunin
samþykkt.
Ályktun um innkaup opimberra aðila
Samþykkt með breytingum nefndarinnar.
I lokahóji að loknu Iðnþingi ja’rði Björgvin Frederiksen L. i.
að gjöf jagran jundarhamar sem hann smiðaði úr kopar. Sig-
urður Kristinsson tók við gjöjinni og þakkaði.
Álylitun um skipasmíðar og viðgerðir
Nefndin lagði til að forystumenn skipasmíða,
sem á þinginu voru, fjölluðu sérstaklega um
þessa ályktun og var í samráði við þá samin ný
ályktun sem var samþykkt samhljóða.
Auk framsögumanns, Sveins S. Hannessonar,
töluðu um þetta mál: Karl Maack, Ásgrímur P.
Lúðvíksson, Bjarni Einarsson, Bjiirgvin Frederik-
sen, Þorbergur Ólafsson, Gunnar Ragnars, Þor-
geir Jósepsson og Árni Guðmundsson.
Tillögur um breytingar á 1. st. 30
Gunnar S. Björnsson gerði grein fyrir breyt-
ingartillögunni, um leið og hann rakti reynslu
manna af staðlinum undanfarin ár. Breytingar
voru síðan samþykktar samhljóða.
Ályktun um stálbrœðslu
Sveinn Hannesson gerði gTein fyrir þessu máli
,'og rakti gang þess undanfarin ár og skýrði þá
möguleika sem fyrir eru og hvatti iðnþingsfull-
trúa til að reka á eftir afgreiðslu málsins hjá opin-
berum aðiium. Ályktunin var samþykkt sam-
hljóða.
Auk framsögumanns tóku þessir til máls:
Gunnar S. Björnsson, Björgvin Frecleriksen, Sig-
urður Már Helgason og Pétur Sæmundsen.
Löggjafarnefnd lagði næst sín mál fyrir þingið
og hafði formaður nefndarinnar, Ásgrímur P.
Lúðvíksson, orð fyrir nefndinni.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
17