Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 30

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 30
Þingfulltrúar í skoðunarferð i Slippstöðinni d Akureyri. Þar sem um er að ræða tillögur að nauðsynlegum aðdraganda að stofnun samræmds framhalds- skóla, lýsir Iðnþing íslendinga furðu sinni á því, að menntamálaráðuneytið skuli ekki enn hafa tekið afstöðu til framlagðra tillagna, þar sem fyr- irhuguð er lagasetning um samræmda framhalds- skólann. Iðnþing fagnar framkomnu frumvarpi um framhaldsskóla, en telur að á því þurfi þó að gera veigamiklar breytingar og er vísað til umsagnar, sem Landssamband iðnaðarmanna hefur sent menntamálaráðuneytinu um málið. 12. Verðlrygging fjárskuldbindinga 37. Iðnþing íslendinga skorar á ríkisstjórnina að breyta lögum nr. 71 frá 6. maí 1966, þannig að heimilt verði að hús og húshlutar, sem byggðir eru á ákveðnum tímabilum og ætlaðir til sölu, séu verðtryggðir samkvæmt byggingavísitölu. 13. Iðnlöggjöfin Að undanförnu hefur nefnd á vegum iðnaðar- ráðuneytisins unnið að endurskoðun á lögunum um iðju og iðnað og hefur hún skilað til iðnaðar- ráðherra drögum að frumvarpi um breytingu á þeim. Leggur nefndin til að nokkrar breytingar verði gerðar á lögunum og þau færð til nútímalegra horfs, með því að sum atriði þeirra verði rýmkuð frá því sem áður var og ýmis algeng vafaatriði gerð ljósari en áður. 37. Iðnþingið hefur haft þessi frumvarpsdrög til umfjöllunar og lýsir yfir stuðningi við þá stefnumörkun, sem þar kemur fram. Sýnist rýmk- un einstakra ákvæða laganna fyllilega í samræmi við stefnu Landssambands iðnaðarmanna og þró- un þá, sem orðið hefur. Ingólfur Jónsson afhendir SigurÖi Kristinssyni hókina Akureyri og norðrið fagra. Jafnframt minnir Iðnþingið á fyrri ályktanir sínar um að aukin menntun og verkkunnátta, sem þróast hefur í skjóli laganna um iðju og iðn- að hefur orðið sú forsenda, sem iðnþróun hér á landi hvílir á. Varlega verði því að fara við breyt- ingar á þessum grundvallarlögum iðnaðarins. 14. Skipasmíðar og viðgerðir Iðnþing bendir sérstaklega á brýna jrörf fyrir eflingu skipaiðnaðarins í landinu. Þrátt fyrir yfir- lýsta stefnu stjórnvalda urn að efla beri þennan iðnað, hefur furðu lítið enn áunnist í þeim mál- um. Það er mat þeirra, er best til þekkja í þessum iðnaði, að mestum árangri veiði náð í innlendri skipasmíði með aukinni stöðlun skipa og rað- smíði þeirra, þannig að hægt sé að hefja smíði skipa án þess að kaupandi sé fenginn. Slíkt myndi hafa margháttað hagræði í för með sér lyrir stöðv- arnar og má þar nefna aukna samræmingu í hönnun skipa og við val véla og tækja, ásamt auð- veldari skipulagningu á vinnu og innkaupum al- mennt. Auðveldara væri að sinna tilfallandi við- gerðum og síðast en ekki síst skapaði slíkt mögu- leika á aukinni samvinnu stöðvanna um smíði skipshluta. Auk þeirra mála, sem getið hefur verið í þess- ari og öðrum fréttatilkynningum frá Iðnjringi, hefur verið fjallað um innri málefni Landssam- bandsins, svo sem breytingar á lögum samtakanna ognýja reglugerð fyrir Almenna lífeyrissjóði iðn- aðarmanna. Þá var samþykkt að gera Ingólf Finnbogason, byggingameistara og fyi'rverandi forseta Lands- sambands iðnaðarmanna, að heiðursfélaga Lands- sambandfsins. Einnig var samþykkt að veita Ola Fi'ost, fyrrverandi formanni Noregs Hándværker- forbund, æðsta heiðursmerki Landssambands iðn- aðarmanna. 24 TÍMARIT IBNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.