Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 32

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 32
t'ormaður, Gissur Sirnonarson, i rœðustól ú afmœlisháliðinni. Iðnaðarmanna- félagið í Reykjavík 110 ára Á þessu ári, eða hinn 3. febrúar s.l., varð Iðn- aðarmannafélagið í Reykjavík 110 ára. Saga þessa gamla og virta félags var skráð þegar félagið varð 100 ára og kemur glögglega i Ijós við lestur þess- arar bókar hversu viða sþor þess liggja og hve mikilvægu forystuhlutverki félagið gegndi lengi vel. Stjórn félagsins hefur á ýmsan hátt á þessu ári minnst afmœlis félagsins. Á afmœlisdaginn tók stjórn félagsins á móti gestum og félagsmönnum i nýjum fundarsal á neðstu hœð i Iðnaðarhúsinu að Hallveigarstig 1. Var þar mikið fjölmenni. Formaður félagsins, Gissur Símonarson, flutti þar rœðu og drap á lielstu þcetti í sögu félagsins. Flutt- ar voru kveðjur ogýmsar gjafir bárust félaginu. Þá var félagið aðili að og tók virkan þátt í upþ- setningu Iðnminjasýningar í Árbœ, sem haldin var i sambandi við iðnkynninguna i Reykjavík s.l. haust Og nú síðast á afmœlisárinu réðst félagið i að halda mikla listsýningu i Iðnaðarhúsinu. Hér er á ferðinni mjög merkilegt og athyglisvert mál og einkar ánœgjulegur þáttur i merkilegu starfi fé- lagsins. Hér eru sýnd 194 listaverk 43 iðnaðar- manna og eru þeir kynntir í vandaðri sýningar- skrá. Sýning þessi hefur vakið miltla alhygli og fengið lofsamlegustu ummœli kunnáttumanna. Stjórn félagsins á lof sliilið fyrir þetta framtak silt og vonandi verður framhald hér á. Timarit iðnaðarmanna fœrir Iðnaðarmannafélaginu, stjórn þess og félögum bestu árnaðaróskir i tilefni þessa merka afmœlis. Hér á eftir eru rifjuð upp nokkur atriði úr sögu félagsins. Sunnudagaskóli fyrir iðnaðarmenn í fundargerðabókum félagsins, sem eru til allt frá árinu 1873, má sjá að fyrstu verkefni félagsins voru að koma á sunnudagaskóla fyrir iðnaðar- menn og gera sameiginleg innkaup á vörum frá Kaupmannahöfn, og voru t. d. keyptir árið 1874 302 pottar af steinolíu sem komu með póstskip- inu frá Kaupmannahöfn. Aðalstarfið var þó fræðslustarfið og ekki varð mikið framhald á vörukaupunum .Var sunnu- dagaskólinn rekinn með hléum fram til aldamóta en þá tók skólinn að færast í núverandi horf og haustið Í904 er farið að kenna 6 daga vikunnar. Tveim árunr seinna reisti félagið húsið við Von- arstræti fyrir skólann og þar var hann til húsa til 1955 er hann fluttist að Vitastíg og þá tóku Reykjavíkurborg og ríkið við rekstri hans. Samkomuhús var reist við Vonarstræti árið 26 TÍMARIT IÐNAÐARMANiNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.