Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Qupperneq 34
Þá stóð félagið fyrir iðnsýningu 1924 og 1932.
Mjög fróðlegt yfirlit er um síðustu sýninguna að
finna í 6. árgangi Tímarits iðnaðarmanna eftir
Guðbjörn Guðmundsson prentara.
Stylta Ingólfs
Nokkru lyrir 1000 ára afmadi íslandsbyggðar
kom Sigurður Guðmundsson fram með þá hug-
mynd í Kvöldfélaginu að reisa standmynd af
fyrsta landnámsmanninum, Ingólfi Arnarsyni.
Ekki komst þessi hugmynd í framkvæmd þá, en
árið 1906, er íslenskir þingmenn heimsækja Dan-
mörku, kom m. a. fram sú hugmynd að danska
þjóðþingið gæfi íslendingum standmynd af Ing-
ólfi eítir Einar Jónsson. Var hætt við Jrá hugmynd
og á félagsfundi í Iðnaðarmannafélaginu árið
1906 var samþykkt að félagið léti gera þessa stand-
rnynd og kosin ,,Ingólfsnefnd“.
Daginn sem ritsíminn var opnaður, 29. sept.
1906, sendi nefndin Einari svohljóðandi skeyti:
„Iðnaðarmannafélagið gengst fyrir kaupum á
Ingólfi, starfaðu öruggur,“
Það var félaginu mjög erfiður baggi að afla f jár
til þessa verks og löng saga, en það hafðist og var
styttan afhjúpuð að viðstöddu fjölmenni 24. íebr-
úar1924.
Hús iðnaðarins
Á stríðsárunum var larið að tala um að nauð-
synlegt væri að koma upp sameiginlegri byggingu
fyrir iðnaðarmenn, og í apríl 1946 er stofnað Hús-
félag iðnaðarmanna af eftirtöldum félögum:
Sveinasambandi byggingarmanna, Landssam-
bandi iðnaðarmanna, Múrarameistarafélagi
Reykjavíkur, Úrsmiðafélagi íslands og Félagi
pípulagningameistara ásamt Iðnaðarmannaíélag-
inu.
Ýmsar ytri ástæður ollu því að ekki var hafist
handa nm framkvæmdir fyrr en 1968 og er nú
húsið risið af grunni svo sem kunnugt er og búið
að taka það að mestu til notkunar. Hefur lélags-
starfsemin s.l. 10 ár einkunr beinst að þessu verk-
efni og á byggingartímanum bættust fleiri félög í
hópinn. Núverandi eigendur eru, auk Iðnaðar-
mannafélagsins, Landssamband iðnaðarmanna,
Trésmíðafélag Reykjavíkur, Meistarafélag húsa-
smiða, Húsgagnameistarafélag Reykjavíkur,
Sveinafélag pípulagningameistara, Félag pípu-
lagningameistara, Málarafélag Reykjavíkur, Úr-
smiðafélag íslands, Félag íslenskra iðnrekenda,
Málarameistarafélag Reykjavíkur, Samband
byggingamanna, Sveinafélag húsgagnasmiða,
Sveinafélag húsgagnabólsttara, Hárgreiðslumeist-
arafélag íslands.
Þá má nefna að í eigu félagsins er „Styrktar-
sjóður ísleils Jakobssonar“ og er úthlutað árlega
úr þeim sjóði styrkjum til iðnaðarmanna, sem
vilja fullnuma sig í grein sinni erlendis. Á s.l. ári
var úthlutað úr sjóðnum kr. 216.000 til 6 iðnaðar-
manna.
Á 100 ára afmæli félagsins var borgarstjóra-
embættinu færð borgarstjórakeðja úr silfri. Verð-
launasjóður, er félagið kom á fyrir 20 árum við
Iðnskólann, hefur veitt viðurkenningu tvö s.l. ár.
Þá var á 75 ára afmæli félagsins gefin út Iðnsaga
íslands í tveimur bindum og sá Guðmundur
Finnbogason, Landsbókavörður, um ritstjórn
þess og á 100 ára afmæli félagsins fékk það Gísla
Jónsson menntaskólakennara til að skrá sögu
þess. Á þessum 110 árum, sem liðin eru frá stofn-
un félagin, hafa 20 gegnt formennku í því. Guð-
nnindur H. Guðmundsson, húsgagnasmíðameist-
ari, gegndi formennsku allra manna lengst eða í
21 ár.
Landssamband iðnaðarmanna
sendir öllum félögum sínum og velunnurum
sínar bestu jóla- og nýársóskir
og óskir um gott og gæfuríkt starf
á komandi ári
28
TÍMARIT IBNAÐARMANiNA