Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Blaðsíða 35
Norrænt iðnþing
Þórleifur Jónsson framkvæmdastjóri
Dagana 10,—12. nóvember 1977 var 18. Nor-
ræna iðnþingið haldið í Stokkhólmi. Norræn iðn-
þing eru haldin á 3ja ára fresti og flyst starfsemi
skrifstofu Norræna iðnráðsins um leið á milli
landa og skiptast iðnaðarsamböndin í aðildar-
löndunum á að hafa með höndum forystu í ráð-
inu, hvert um sig í 3 ár í röð. Síðast jregar þingið
var haldið í Noregi í nóvembermánuði 1974 kom
upp sú umræða í stjórn Landssambandsins, að
þar sem mjög mikilsvert væri að Landssamband-
ið tæki virkan þátt í norrænni samvinnu, væri
æskilegt að íieiri en forseti og framkvæmdastjóri
ættu Jress kost að fara á slík Jring. Af þessum sök-
um og Jrar sem talið var æskilegt að stjórnarmenn
ættu þess kost að kynna sér af eigin raun starfsemi
systursamtaka Landssambandsins á Norðurlönd-
um, var ákveðið að óvenjumargir fulltrúar
myndu sækja þingið af íslands hálfu. Þá var á-
kveðið, að jafnframt yrði farin kynnisferð til Nor-
egs, þannig að þátttakendur gætu kynnt sér starf-
semi Norska iðnsambandsins, svo og fengið tæki-
færi til Jress að heimsækja ýmsar stofnanir tengd-
ar iðnaði þar í landi. í för Jressa fóru: Sigurður
Kristinsson, forseti Landssambandsins og stjórn-
armennirnir Gunnar S. Björnsson lnisasmíðam.,
Gunnar Guðmundsson rafverktaki og Arnfríður
Isaksdóttir hárgreiðslumeistari. Ennfremur voru
með í förinni Jaeir Sigurvin Snæbjörnsson bygg-
ingameistari og Ólafur Pálsson, fyrrverandi
stjórnarmaður Landssambandsins ásamt starfs-
mönnum sambandsins Sveini S. Hannessyni skrif-
stofustjóra og Þórleifi Jónssyni framkvæmda-
stjóra.
í Osló kynnti hópurinn sér sérstaklega starf-
semi Norsku iðntæknistofnunarinnar (Statens
Teknologisk Institutt) og Iðnskólans í Osló. Það
vakti athygii á báðunr stöðum, að á sumum svið-
um virðast Norðmenn vera lengra komnir að Jrví
er varðar tækjakost og aðbúnað svo og nýjungar í
starfseminni ,en á öðrum sviðum má telja að þeir
standi okkur fslendingnnr að baki.
Norska iðntæknistofnunin lrefur þrenns konar
lrlutverk. í fyrsta lagi er um að ræða hagnýtar
rannsóknir og tilraunastarfsemi, í öðru lagi Jrjálf-
un starfsfólks, nánrskeiðahakl og eftirnrenntun,
og í Jrriðja lagi bein rekstrar- og tækniráðgjöf við
fyrirtæki. Öll Jressi starfsemi er fyrst og fremst
lrugsuð til Jress að koma til nróts við smáfyrirtæki
í iðnaði, senr oftast lrafa ekki bolnragn til Jress að
halda uppi slíkri starfsenri sjálf. Stofnun þessari
er ætlað Jrað lrlutverk að vera eins konar tengi-
liður milli vísindastofnana og vísindanranna og
fyrirtækjanna og forsvarsmanna Jreirra með Jrvi
að flytja Jrekkingu frá Jreim sem hafa að aðalstarfi
að safna saman Jrekkingu til Jreirra, senr Jrurfa að
nota þekkinguna. Þannig er lrlutverk hennar fyrst
og fremst að vera þjónustustofnun fyrir iðnaðinn,
með það að nrarkmiði að hagnýta Jrá Jrekkingu
og nýjungar, sem vísindamenn, uppfinningamenn
og aðrir sitja uppi með.
Iðnskólanum í Osló svipar að nrörgu leyti til
Iðnskólans í Reykjavík, nema hann er að sjálf-
sögðu miklunr mun stærri. Það vekur atlrygli,
hvernig skólinn er rekinn eins og sjálfstætt lítið
Jrjóðfélag, t. d. prenta nemendur flest allt náms-
efni, sem nota Jrarf og kjötiðnaðarnemar og bak-
aranemar sjá mötuneytinu fyrir kjötvörunr og
brauðvörum. Þá er og athyglisvert að allar Jressar
deildir, sem nefndar hafa verið, hafa sjálfstæðar
sölubúðir og rekur skólinn bókaútgáfu og bók-
TÍMARIT IÐNABARMAN NA
29