Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 36

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 36
sölu, bakarí og matvörubúð. Þá tekur skólinn einnig að sér smíði íbúðarhúsa og er kennarinn þá meistari á húsinu. Ýmislegt mjög fróðlegt kom fram við kynningu á Norska iðnaðaisambandinu. Sambandið er eins og Landssamband iðnaðarmanna, heildarsam- band meistara og fyrirtækjafélaga með saintals um 8000 félgsmönnum og fyrirtækjum í fram- leiðslu-, þjónustu- og byggingariðnaði. Starfsemi samtakanna er að sumu leyti lík starfsemi Lands- sambandsins og að öðru leyti ólík. Það sem líkt er með starfseminni er að bæði samtökin vinna að bættum rekstrarskilyrðum í iðnaði og eru tengiliður milli stjórnvalda og þess hluta iðnað- arins, sem þau starfa fyrir. Norsku iðnaðarsam- tökin leggja öllu meira upp úr áróðri og samskipt- um við fjölmiðla og stjórnmálamenn heldur en Landssambandið, en starfa aftur á móti ekkert að námskeiðahaldi eða þróunarverkefnum í iðnaði, eins og Landssambandið hefur í seinni tíð sífellt lagt meiri áherslu á. Dagskrá Norræna iðnþingsins var með nokkuð óvenjulegum hætti í þetta sinn. Þingið var hald- ið í tengslum við fund, sem Sænska iðnsamband- ið hélt, undir kjörorðinu „Dagur fyrirtækisins 1977“. Á fundi þessum, sem stóð yfir heilan eftir- miðdag, kynnti iðnaðarráðherra Svía, Nils Ásling, frumvarp, sem sænska ríkisstjórnin lagði fram í Stórþinginu þennan sama dag og hefur að mark- miði að efla stöðu smáiðnaðar í Svíþjóð og bæta aðstöðu og kjör atvinnurekenda, sem eiga og reka lítil eða meðalstór fyrirtæki. Mál þetta er óvenju- legt að því leyti, að 4 ráðuneyti setja fram eitt sameiginlegt frumvarp um umbætur og eflingu tiltekins hluta atvinnulífsins. Það eru ýmsar á- stæður fyrir því að þetta frumvarp er borið fram nú. Svíar standa frammi fyrir miklum erfiðleik- um á útflutningsmörkuðum sínum, vegna sífellt harðnandi samkepni og erfiðleika á að standast hana. Viðbrögð þeirra við þessu eru athyglisverð, ekki síst fyrir þá sök, að í stað þess að reyna að efla þau fyrirtæki, sem mest eru áberandi í at- vinnulífinu, þ. e. hin fjölmörgu risafyrirtæki sem þeir eiga, þá beina þeir athygli sinni nú að smærri fyrirtækjunum. Það kom berlega í ljós á þessum fundi, að menn eru sífellt betur og betur að átta sig á því hversu mikilvægu hlutverki smærri fyrirtækin gegna í þjóðfélaginu. Frumvarp þetta er fyrir margra hluta sakir at- hyglisvert, en ekki verður farið út í efnisatriði þess hér, þar sem því verða gerð ýtarleg skil ann- ars staðar í þessu hefti Tímaritsins. Að morgni föstudagsins I 1. nóvember hófst síðan Iðnþingið sjálft. Stig Stefanson, íorseti Nor- ræna iðnráðsins, setti þingið með ávar]ii. Rifjaði hann upp samskipti iðnaðarsamtakanna í aðildar- löndunum á þeim þremur árum, sem liðin eru frá síðasta Iðnþingi og ræddi um þýðingu þessara samskipta fyrir iðnaðarsamtökin. Þá flutti banka- stjóri Norræna fjárfestingarbankans, Bert Lund- ström, fyrirlestur um bankann og möguleika hans til að veita lán til norrænna verkefna á sviði smá- iðnaðar. Fram kom í máli hans að Norræni fjár- festingarbankinn hefði verið stofnaður til þess að auka möguleika Norðurlandanna á að útvega fjármagn með hagstæðum kjörum á hinum al- þjóðlegu peningamörkuðum og veita síðan lán til samnorrænna verkefna. Bankinn getur veitt lán bæði einkaaðilum og opinberum aðilum, en til þess að verkefni sé lánshæft þurfa í ílestum til- fellum að vera tvö eða fleiri Norðurlönd saman um verkefnið. Þó getur bankinn veitt lán til eins lands, ef verkefnið er í þágu fleiri landa, t. d. með byggingu orkuvera, samgöngutækja og þess háttar verkefna, sem koma fleiri en einu landi að gagni. Bankinn var stofnaður 4. desember 1975 og hefur lánað í 3 stór verkefni, m. a. til íslenska Málmblendifélagsins. Fulltrúar íslands í stjórn bankans eru Þórhall- ur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri og Jón Sigurðsson hagrannsóknarstjóri. Aðalmál þingsins var umræða um skýrslur þær, sem lagðar voru fram á þinginu frá aðildarlönd- um. Fyrir þingið höfðu Svíar látið þau boð út ganga, að von væri á frumvarpi því, sem áður er getið um eflingu smáiðnaðarfyrirtækja í Svíþjóð. Oskuðu þeir eftir að aðalmál þingsins yrði um- ræða um þær aðgerðir, sem boðaðar eru í þessu frumvarpi og hliðstæðar aðgerðir í hinum lönd- unum, enda yrði gerð grein fyrir þeim í skýrslum hinna einstöku landa. I Ijós kom, að aðeins í Noregi er fyrirhugað að leggja lram frumvarp í líkingu við hið sænska, það er frumvarp, sem beinist fyrst og fremst að stefnumótum um aðgerðir til að efla smá og með- alstór iðnfyrirtæki. Það er þó ekki þar með sagt að ekki sé unnið að þv,í að lagfæra rekstrarskil- yrði iðnaðarins í hinum löndunum. Þar eru að- gerðirnar hins vegar ekki bundnar við stærð fyr- irtækja eins og í Svíþjóð og Noregi, heldur bein- ast þær fremur að heildinni, eða jalnvel að til- teknum greinum iðnaðarins eins og t. d. í Dan- mörku, þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á framleiðsluaukandi aðgerðir í byggingariðnaði. í norska frumvarpinu bera hátt áform um efl- ingu upplýsingaþjónustu, námskeiðahalds og rekstrarráðgjafarstarfsemi Norsku iðnfræðistofn- unarinnar. Er m. a. gert ráð fyrir að efla eftir- menntunarstarfsemi stofnunarinnar, sem beinist fyrst og frenrst að þjálfun og kennslu í nýjung- 30 TIMAU.IT IBNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.