Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 38
hlutverk að samhæfa starfsemi þeirra aðila í Dan-
mörku, sem veita styrki til tækniaðstoðar hvers
konar og aðstoðar á sviði fyrirtækjastjórnunar.
Jafnframt hefur 50 millj. danskra króna verið
varið til þess að efla starfsemi af þessu tagi og er
ætlunin með þessu að gefa fyrirtækjum góðan
möguleika á að nýta sér hvers konar ráðgjöf, nám-
skeiðahald og starfsþjálfun, sem opinberir aðilar
og ráðgjafafyrirtæki í einkaeign hafa upp á að
bjóða.
Af þeim ráðstöfunum, sem fyrirhugaðar eru í
Danmörku, má nefna auk þess sem hér að fram-
an hefur verið getið:
1. Þeir styrkir, senr veittir eru til aðgerða er leiða
til orkusparnaðar, t. d. með bættri einangrun
húsa o. fl., verða auknir. Ennfremur styrkir til
fyrirtækja, sem nýta afgangsorku frá orkuver-
um.
2. Afskriftareglur vegna nýs atvinnuhúsnæðis
breytast þannig, að leyfðar eru 10% afskriftir
á því ári sem húsnæðið er keypt eða tekið í
notkun. Á öðru ári afskrifast einnig 10%, þá
6% næstu 8 árin og 2% á ári eftir það.
3. Lagaákvæði um stimpilgjöld breytast á þann
hátt, að þótt tilkynna þurfi ákveðnar breyting-
ar á skuldbréfum til þinglýsingar, verður það
ekki gjaldskylt.
4. Veitt verða lán til stofnsetningar fyrirtækja úr
sjóðum, sem aðeins veittu lán til endurbóta
eða stækkunar fyrirtækja áður.
5. Veittir verða beinir ríkisstyrkir til vöruþróun-
ar, en með vöruþróun er þá átt við umbætur
og þróun á framleiðslu, sem fyrir er ásamt þró-
un á nýrri vöru. Styrkveitingin nær til 40%
kostnaðar, þó í mesta lagi 1 millj. danskra kr.
Ekki er ástæða til að lengja þessa grein með
því að tíunda innihald skýrslu Landssambands
iðnaðarmanna til Iðnþingsins, þar sem lesendur
Tímaritsins þekkja allar aðstæður í þessum efn-
um hér á landi. Það má þó nefna, að meginefni
hennar var stutt lýsing á þeim aðgerðum, sem hér
hafa verið gerðar í kjölfar EFTA-aðildarinnar og
var greint frá skoðun Landsambandsins á þeim.
Ennfremur voru ýmsar yfirlýsingar, sem komið
hafa fram í tveimur ræðum núverandi iðnaðar-
ráðherra, látnar fylgja skýrslunni, til þess að gera
grein fyrir þeim atriðum, sem sá ráðherra sem fer
með stefnumótun í iðnaðarmálum telur að tak-
ast þurfi á við í næstu framtíð.
Nokkrar umræður urðu um skýrslur landanna.
Skýrslurnar bera með sér það sem raunar var vit-
að, að eftir jrví sem fríverslun milli landa hefur
verið aukin, því meir hafa hin ýmsu lönd aukið
stuðningsaðgerðir sínar. Er nú svo komið að í
stað þess að áður voru tollar mismunandi háir,
eru nú aðgerðir til styrktar atvinnuvegunum mis-
munandi miklar í löndunum. Þessi málefni hafa
verið ofarlega á baugi hér á landi að undanförnu.
Það mætti skrifa heila bók um stuðningsað-
gerðir hvers lands fyrir sig. Hér að frarnan hefur
verið gerð grein fyrir því nýjasta í þessum efnum,
sem þó þarf engan veginn að vera það mikilvæg-
asta sem taka þarf til greina við samanburð á
milli landanna. Fulltrúar Landssambands iðnað-
armanna á þessu þingi sannfærðust enn betur en
áður um það, hve mikilvægt er fyrir íslenskan
iðnað og iðnaðarmenn að vera vel á verði og
fylgjast vel með þessum atriðum, sem geta valdið
úrslitum um samkeppnishæfni iðnaðarins hér á
landi.
I lok Iðnþingsins tók Matti Niemi verkfræð-
ingur, formaður Einnska iðnsambandsins, við
formennsku í Norræna iðnráðinu og mun skrif-
stofa ráðsins jafnframt verða í Helsinki næstu 3
árin, en þar verður næsta Norræna iðnþing vænt-
anlega háð árið 1980.
Ræða Gimnars Thoroddsens
Framh. af bls. 14
breyst, íslenskum iðnaði í hag. Þjóðin hefur öðl-
ast næmari skilning en áður á gildi iðnaðar. Við
skulum vona að sama máli gegni um svokallaða
ráðamenn þjóðarinnar. Allur þessi aukni skiln-
ingur mun skila íslenskum iðnaði til sívaxandi
framlags í þágu íslenskrar þjóðar.
Atvinnugreinar vinni saman á jafnréttis-
grundvelli
Þeirrar tilhneigingar gætir um of að telja þýð-
ingu einhverrar einnar atvinnugreinar meiri en
annarra. Þess hefur einnig nokkuð gætt að telja
eina grein iðnaðarins þýðingarmeiri en aðra.
Slíkur metingur er varasamur. Það er hollara að
hafa í liuga, að atvinnulífið er ein samofin lieild
og njóta einstakar greinar þess stuðning hver af
annarri.
Því aðeins mun þjóðinni vel farnast, að allar
atvinnugreinar vinni vel saman af skilningi og
bróðurhug á jafnréttisgrunni. Að því skulum við
öll vinna.
32
TÍMARIT IBNAÐARMANÍNA