Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 40

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 40
fyrir stjórnendur fyrirtækja fer fram í gegnum SIFU (Statens industriverks enhet för foretags- ntveckling). Þessa starfsemi vill sænska ríkis- stjórnin efla, og þá einkum á formi stuttra námskeiða á ákveðnum afmörkuðum sviðum. Hér er um að ræða fræðslustarfsemi bæði um tæknileg og fjárhagsleg efni, en sérstök áhersla er lögð á að fræðslan sé hagnýt og aðgengileg fyrir stjómendur smáfyrirtækja. Einnig er ætl- unin að kynna á þenan hátt nýjar aðgerðir opinberra aðila, t. d. ný lög, sem áhrif hafa á aðstöðu smáfyrirtækjanna. Áætlað er að anka framlag ríkisins til SIFU vegna þessa um 1,3 millj. s. kr. á næstu fjárlög- um, eða sem svarar tæpum 60 millj. ísl kr., en í heild mun varið til þessara mála á næsta ári um 20 millj. s. kr., sem samsvarar um 900 millj. ísl kr. 6. í Svíþjóð er talsverður fjöldi fyrirtækja, sem sérhæfa sig í vöruþróun, þ. e. að þróa uppfinn- ingar og hugmyndir yfir í raunverulega fram- leiðslu og sölu. Til að eíla þessi fyrirtæki ,sem oft eru lítt arð- bær og taka á sig mikla áhættu, þar sem árang- ur starfsins er mjög ótryggur, er í frumvarp- inu gert ráð fyrir að styrkja þessa starfsemi sér- staklega í gegnum STU (Styrelsen för teknisk utveckling), en sú stofnun fékk á fjárlögum 1975/76 245 millj. s. kr. og veitti þar af í styrki til fyrirtækja um 220 millj. s. kr., sem samsvar- ar unr tæpum 10 milljörðum ísl. kr. Fjármá laráðuneytið Þætti sænska fjármálaráðuneytisins í frumvarp- inu má í aðalatriðum skipta í jrrjá meginþætti: 1. Eignaskattar og erfðafjár- og gjafaskattar vegna eignaskipta verða verulega lækkaðir þegar smá- fyrirtæki eiga í hlut, en talið er að þessir skatt- ar séu nú sérstaklega þungbærir smáum fyrir- tækjum. Þá lrefur það þótt óæskileg þróun, að mörg smáfyrirtæki hafa verið seld stórfyrir- tækjurn og fyrirtækjasamsteypum, einungis af skattalegum ástæðum, sem torveldað hafa kyn- slóðaskipti í fyrirtækjunum. Umræddar breyt- ingar á skattalögunum eru talsvert flóknar og þyrfti langt mál til að greina frá þeim til lrlýt- ar og verður ekki gert hér. Hins vegar má geta þess, að þau smáfyrirtæki, sem njóta góðs af þessum breyttu ákvæðum greiða nri um 150 millj. s. kr. í eignar-, erfða- og gjafaskatt á ári, en eftir breytinguna munu þau greiða um þriðjung þessarar fjárhæðar, eða 50—60 millj. s. kr. í heild nemur þessi skattalækkun Jrví 4—4,5 milljörðum ísl. kr. Þar að auki koma svo heimildir til að dreifa greiðslu erfða- og gjafaskatta á allt að 20 ára tímabil. 2. Frumvarpið gerir ráð fyrir að efla útflutnings- möguleika smáfyrirtækja á þann hátt, að rýmka ákvæði um skattalega ívilnun vegna útflutn- ings. Einn jráttur í þessari rýmkun er t. d. að skattaívilnun er nú bundin við að viðkomandi útflytjandi hafi þurft að veita a. m. k. 1 millj. s. kr. lán vegna útflutningsins, en þetta rnark á skv. frumvarpnu að lækka í 500 þús. s. kr. 3. í frumvarpinu er lagt til að rýmka reglur um frádrátt af skatti hjá smáfyrirtækjum, vegna notkunar einkabifreiða eigenda við rekstur- inn. Einnig er ráðgert að breyta reglum um arðgreiðslur. Viðskiptamálaráðuneytið Aðgerðum þeim í frumvarpinu, sem koma frá viðskiptaráðuneytinu má skipta í þrjá hluta: 1. Skipuð er nefnd til að kanna lánamál þjón- ustufyrirtækja og gera tillögur um úrbætur. Einnig skal nefndin kanna þörfina fyrir aukna ráðgjafaþjónustu til handa smáfyrirtækjum í þjónustu og hvernig lrenni skuli háttað. 2. Smáfyrirtæki, sem starfa á sviði ferðamála fá aðstoð í gegnum ,,Ferðamálaráð“ (Turist- Framh. á bls. 36 34 timar.it ibnaðarmanna

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.