Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 41

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 41
3. Sambandsþing Sambands málm- og skipa- smiðja var haldið að Hótel Loftleiðum laugar- daginn 26. nóvember s.l. Þórður Gröndal verkfræðingur, formaður sam- bandsins, setti þingið og flutti skýrslu stjórnar. Hann drap á helstu málefni, sem stjórnin hefur unnið að frá síðasta þingi, sem haldið var árið 1975. Guðjón Tómasson framkvæmdastjóri, skýrði frá starfsemi skrifstofunnar og gerði nánari grein fyrir þeim málaflokkum, sem mest var unnið að á kjörtímabilinu. Ræddi hann m. a. um kjara- samningana á s.l. surnri og verðlagsmálin, en báð- ir þessir málaflokkar hafa verið mjög umsvifa- miklir í starfsemi sambandsins að undanförnu. Þá voru reikningar áranna 1975 og 1976 bornir upp og samþykktir, svo og fjárhagsáætlun ársins 1978. Samkvæmt lögum sambandsins er formaður þess kosinn á sambandsþingi, en aðrir fram- kvæmdastjórnarmenn eru tilnefndir af aðildarfé- lögum sambandsins, einn frá hverju. Ennfremur tilnefna félögin tvo menn livort í sambandsstjórn. Þórður Gröndal verkfræðingur, sem verið hef- ur formaður sambandsins frá stofnun þess (árið 1973) gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Fram komu uppástungur um tvo menn til formennsku- kjörs, þá Geir Þorsteinsson forstjóra og Svein A. Sæmundsson blikksmíðameistara. Geir Þorsteins- son gaf ekki kost á sér og var Sveinn A. Sæmunds- son því kjörinn formaður SMS til næstu tveggja ára. Framkvœmdastjórn Sambands málm- og skipasmiðja Sveinn Sæmundsson, formaður Jón Sveinsson, varaformaður Steinar Steinsson, ritari Birgir Guðnason, gjaldkeri Garðar Erlendsson, meðstjórnandi. Varamenn: Jósep Þorgeirsson Markús Sveinsson Þórir Jónsson Kristján Ingimundarson. Sambandsstjórn Sambands málm- og skipasmiðja Bílgreinasambandið: Guðjón Guðmundsson Þórir Jónsson Varamenn: Ágúst Hafberg Ásgeir Gunnarsson. Aðalfundur Sambands málm- og skipasmiða Félag blikksmiðjueigenda: Sigurður Hólmsteinn Jónsson. Varamaður: Ingimar Sigurtryggvason. Félag dráttarbrauta og skipasmiðja: Bjarni Einarsson Gunnar Ragnars Þórarinn Sveinsson. Varamenn: Vigfús Sigurðsson Þorbergur Ólafsson Þorgeir Jósepsson. Meistarafélag járniðnaðarmanna: Markús Sveinsson Þórður Gröndal Kristmundur Sörlason Kristján Þór Kristjánsson. Varamenn: Ólafur Sigtryggsson Guðbjartur Einarsson Árni Kristjánsson Björn Gíslason. Að loknum venjulegum þingstörfum lágu fyrir nokkur mál frá stjórninni. Meðal þeirra voru verðlagsmál, sem fyrirhugað var að taka sérstak- lega til umfjöllunar á þinginu. Við undirbúning þingsins hafði verið gert ráð fyrir að skýrari línur lægju fyrir varðandi deilu þá, sem SMS og fleiri TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 35

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.