Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Side 48
Þar sem nokkuð hefur borið á því að eigendur
og forráðamenn iðnfyrirtækja þekkja ekki eða
vita ekki af þeim lánamöguleikum sem Seðla-
banki Islands býður upp á, þykir rétt að vekja
hér athygli á þessum möguleikum.
Seðlabankinn veitir tvenns konar lán til iðn-
fyrirtækja, þ. e. framleiðslulán og rekstrarlán og
eru þau nefnd einu nafni endurkaupalán. Þessi
lánafyrirgreiðsla gengur i gegnum viðskiptabank-
ana, þannig að það eru viðskiptabankarnir sem
snúa sér til Seðlabankans með lánabeiðnir fyrir
sína viðskiptavini.
í reglum Seðlabankans um framleiðslulán, seg-
ir „að Seðlabankinn sé reiðubúinn að endur-
kaupa víxla (framleiðslulán) út á birgðir af full-
unnum iðnaðarvörum (og þegar sérstaklega
stendur á, hráefnum og vörum í vinnslu) ef eftir-
farandi skilyrðum er fullnægt að mati bankans:
1. Að hinar fullunnu vörur séu:
a) samkynja
b) auðseljanlegar
c) hafi verið á markaði í 12 mánuði a. m. k.
2. Að verðmæti ársframleiðslu fyrirtækis sé ekki
undir ákveðnu lágmarki, sem Seðlabankinn
setur fyrir hverja atvinnugrein.
3. Að fyrir liggi endurskoðaður efnahags- og
rekstrarreikningur ásamt rekstrar- og greiðslu-
áætlunum, sem Seðlabanki getur byggt mat sitt
á efnahag og lánsþörf viðkomandi fyrirtækis,
svo og lýsing á starfseminni.“
Seðalbankinn hefur ekki framfylgt annarri
greininni um verðmæti ársíramleiðslu og verður
því að láta reyna á það í liverri umsókn, hvort fyr-
irtækið er nægilega stórt.
I fyrstu voru þessi lán ætluð til iðnaðarvara,
sem ætlaðar voru til útflutnings en hafa nú einn-
ig verið veitt til iðnaðarvara sem ætlaðar eru til
Endurkaupalán
Seðlabanka Islands
Hannes Guðmundsson viðskiptafræðingur
sölu á innlendum markaði. Þá er átt við mikil-
vægar framleiðslugreinar og sérstaka fjármögnun-
arþörf, svo sem vegna árstíðabundinnar fram-
leiðslu og sölu, enda sé pá um að rœða lítið toll-
verndaða framleiðslu.
Samþykki Seðlabankinn umbeðin endurkaup,
gilda eftirfarandi reglur:
1. Fyrir skal liggja yfirlýsing um birgðir þær, sem
lánað er út á, magn þeirra og að þær séu geymd-
ar í vörslu lántaka á sérstökum afmörkuðum
geymslustað. Birgðaskýrslan sé undirrituð af
framkvæmdastjóra fyrirtækisins eða fulltrúa
hans, svo og verkstjóra eða birgðaverði.
2. Lántaki skal gera sérstakar birgðaskýrslur fyrir
hvert framleiðsluár með eftirtöldum upplýs-
ingum:
a. Birgðir af fullunnum vörum skv. lið 1,
b. birgðir af hráelni,
c. ókomið hráefni, sem búið er að sanrþykkja
greiðsluskuldbindingar fyrir,
d. lán vegna kaupa á hráefni,
e. innstæðu á geymslureikningi vegna kaupa á
hráefni.
3. Lántaki skal hafa veðsett eða framselt birgðirn-
ar viðskiptabanka á formlegan hátt, eins og lög
leyfa.
4. Lánin skulu reiknast sem hundraðshluti af
nettó-verksmiðjuverði, eftir því sem Seðlabank-
inn ákveður hverju sinni að frádregnum 5% til
öryggis. Nettó-verksmiðjuverð ákveður Seðla-
bankinn á hinum ýmsu iðnaðarvörum, svo oft
sem ástæða þykir til, eftir því sem markaður
og markaðshorfur eru að mati bankans. Komi
í Ijós, að lán vegna hráefniskaupa séu hærri en
80% af verðmæti hráefnisbirgða, skal fram-
leiðslulán lækka, sem nernur þeirri fjárhæð,
sem umfram er 80%.
42
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA