Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Blaðsíða 57
Rannsóknastofnun
iðnaðarins Tréiðnaðardeild
F úavarnar efni
og notkun þeirra
Aðalsteinn Jónsson efnaverkfræðingur
Hér verður haldið áfram kynningu á starf-
semi deilda Rannsónarstofnunar iðnaðarins,
áður hefur verið kynnt málmiðnaðardeild, en
nú verður tréiðnaðardeildin kynnt.
Mikið er leitað til tréiðnaðardeildarinnar
vegna upplýsinga, leiðbeininga og rannsókna
á hinum ýmsu efnum, hráefnum o. fl., sem
notað er í þessum iðnaði. Einnig hefur deildin
haldið námskeið og fyrirlestra um þessi efni.
Þá hefur tréiðnaðardeildin gert rannsóknir á
lökkum, málningu og fúavarnarefnum svo
eitthvað sé nefnt, og kemur þar greinilega í
íjós að þekkingu á þessum efnum og meðferð
þeirra er ábótavant.
Hér á eftir fer grein eftir Aðalstein Jónsson
efnaverkfræðing unr fúavarnarefni og notkun
jreirra, en rannsóknir á þessum efnum hafa
verið gerðar hjá stofnuninni.
Þörf fyrir fúavarnir hefur stóraukist síðustu
áratugina, vegna Jress að menn verða að nota við
úr ungum trjám, þar sem hlutfall risjuviðar er
mun hærra en í ])eim viði, sem áður var notaður
til smíða.
Áður fyrr fengu trén að vaxa í 100—150 ár og
var kjarninn þá stór hluti af þvermáli trésins.
Þegar tré vaxa, eykst þvermál kjarnans, 'en þykkt
risjulagsins utan á kjarnanum breytist lítið.
í dag er smíðaviður aðallega skorinn úr ung-
um trjám og viðurinn síðan ofnþurrkaður.
Leið viðarins úr skóginum til notandans tekur
olt ekki nema nokkra mánuði og minnka ]dví
möguleikarnir á að taka frá við, sem sýktur er af
sveppum og þörfin fyrir fúavarnir ]wí auðsæ.
Til þess að fúasveppir geti þrifist þarf viðar-
rakinn að vera a. m. k. 20%, þó eru til undan-
tekningar, svo sem lnísasveppur, sem getur vaxið
við 17—18% viðarraka, sem svarar til ca. 80%
loftraka.
Reynt er að hindra að viður fúni, með því að
sjá fyrir góðri loftræstingu og með notkun sveppa-
eiturs.
í Danmörku er viðnum skipt í þrjá flokka með
tilliti til krafna um fúavarnir:
1. flokkur
Til þess flokks telst viður, sem notaður er i
burðarbita (trévirki), viður sem er í snertingu við
jörð, trésökklar o. þ. h.
Þennan við verður alltaf að gegndreypa með
þrýstingi.
2. flokliur
Til þess flokks teljast stoðir í milliveggjum,
gluggar, byggingaeiningar úr tré o. þ. h.
Þennan við þarf að vacuumgegndreypa eða láta
viðinn liggja í gegndreypingarvökvanum í 12
klst.
3. flokkur
Til jiess flokks telst utanhússklæðning, bíl-
skúrshurðir o. þ. h.
Hér eru talin nægja fúavarnarefni, sem borin
eru á með pensli.
Við gegndreypingu er ýmist notuð vatnsupp-
lausn sem inniheldur ýmis málmsölt, svo sem
kopar-, króm-, arsen-, fluor- og bórsölt (Boliden-
salt sem mikið er notað, inniheldur kopar, króm
og arsen) eða kreosotolía, sem er sá hluti koltjöru,
sem hægt er að eima úr tjörunni við 240—270- C.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
51