Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 60

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 60
Rannsóknastofmm byggingariðnaðarins Húsbyggingatækni legar rannsóknir Hákon Ólafsson yfirverkfræðingur 1 þessu hefti verða húsbyggingatœknilegar rannsóknir stofnunarinnar kynntar. Áður hefur birst almenn kynning á starfsemi stofnunarinnar og síðan yfirlit yfir þær steinsteypurannsóknir, sem stundaðar eru. Með húsbyggingatæknilegar rannsóknir er átt við rannsóknir, sem beinast að hönnun og út- færslu á hinum ýmsu þáttum húsa, ásamt gæða- prófum á byggingarefnum. Geta rannsóknir þess- ar verið af ýmsu tagi, og verður hér rninnst á nokkrar þeirra, sem hafa beint hagnýtt gildi fyrir iðnaðarmenn. a) Slagregnsskápur Eins og nafnið bendir til þá er hér um að ræða skáp, þar sem prófa má byggingahluta gagnvart slagregni (rigning og rok). í skápnum er komið fyrir blásara og regnúðunartækjum. Blásarinn blæs vatnsdropum gegnum 16 útblástursop á vegginn, sem prófa skal. Með vélbúnaði eru út- blástursstútarnir og vatnskranarnir lireyfðir upp og niður fyrir framan vegginn, þannig að vatns- úðinn dreifist breytt í liviður, sem eru 8 á hverri mínútu. Skápur þessi er mikið notaður en hann lrentar einkum fyrir eftirtaldar rannsóknir: 1. Til að gera samanburðarprófanir á þéttleika mismunandi samskeyta. 2. Til að gera prófanir á gluggum, þéttleika opn- anlegra glugga, með og án þéttilista, og ísetn- ingu glers. 3. Sem hjálpartæki við hönnun ýmissa samskeyta og val hagkvæmra lausna. Á mynd 1 hér að aftan má sjá lóðrétt snið af skápnum. a b c d e f g HREYFILL BLASARI LOKI BLASTURSSTÚTUR VATNSÚÐARI KEÐJUDRIF PROFVEGGUR LOÐRÉTT SNIÐ Mynd 1 54 TIMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.