Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 61
Toykrof i
b) Naglhald þaksaums
Ekki er óalgengt, að bárujárnsplötur og jafnvel
hlutar heilla þaka fjúki, þegar veðrið er hvað
verst. Stofnunin hefur gert rannsóknir á naglhaldi
þaksaums, og þá borið saman eftirfarandi gerðir
nagla:
1. Sléttur óhnykktur.
2. Sléttur hnykktur.
3. Snúinn óhnykktur.
4. Snúinn hnykktur.
5. Þverriflaður óhnykktur.
Voru rannsóknir framkvæmdar á þann hátt, að
2i/£" naglar voru negldir í misblaut 1" furuborð.
Var síðan mælt hversu mikið átak og vinnu þurfti
til þess að draga þá út.
Mynd 2 hér að ofan sýnir niðurstöður þessara
athugana.
Sést að þverriflaður þaksaumur gefur mest liald
miðað við færslu.
c) Styrkleiki mótatengja
Gerðar voru samanburðarrannsóknir á mis-
munandi gerðum mótatengja. Við rannsóknirnar
var notað 20 cm veggmót úr 1" furuborðum með
2x4" uppistöðum.
Niðurstöður Jiessara rannsókna eru sýndar á
mynd 3.
d) Ástandskönnun tvöfalds einangrunarglers
Nú um nokkurt skeið hefur verið unnið að
ástandskönnun á tvöföldu gleri. Var rannsóknin
framkvæmd á þann hátt, að rannsakaðar voru a.
m. k. 50 rúður frá hverri verksmiðju fyrir hvert
framleiðsluár.
Nú er verið að ganga frá endanlegri skýrslu um
niðurstöður. Kemur hún út í lok desember 1977
og verður seld hjá stofnuninni.
Nokkrar niðurstöður koma fram á myndum 4
og 5 hér að aftan. Sést hvernig bilanatíðnin er
liáð aldri og livað ríkjandi slagveðursátt hefur
mikil áhrif á endinguna.
Þess skal getið, að nýframleitt gler frá öllum
verksmiðjum var sent til rannsóknar hjá bygg-
ingarannsóknastofnun Noregs, sem er eina stofn-
unin í Evrópu, sem hefur tækjakost til slíks.
Rannsóknir sýndu, að allar rúðurnar stóðust
þeirra kröfur.
Þessar niðurstöður benda til þess, að annað
hvort hefur íslensk framleiðsla batnað verulega
seinustu árin eða þá, að íslensk veðrátta er jiað
TÍMARIT IÐNABARMANNA
55