Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 64

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 64
Kynning fyrirtækja Stjörnustál hf. A meðan á Iðnsýningn í Laugardalshöll stóð, bauð fyrirtœkið Stjörnustál hf. til blaðamannafundar til kynningar á fyr- irtækinu. Stjörnustál hf. var stofnað 1976 og var fyrsta verkefni þess lagning gufu- veitu í Kröflu. Stofnendur Stjörnustáls hf. eru fimm fyrirtceki í málmiðnaði Stál- ver hf., Þrymur hf., Vogur lif., Blikk og Stál hf. og Málmtækni sf. Þessi leið að sameina krafta til stærri áitaka er vafalaust rétt og gefur mögu leika til að takast á við stærri verkefni, sem þýðir að aukin tækni og þekking byggist upp hér innanlands. Markmið Stjörnustáls hf. er að geta ráðið við og vinna að stórum viðfangsefnum og eru forstöðumenn fyrirtœlúsins með stórar framtíðarhugmyndir. Hér á eftir fer kynning á þeim fyrirtækjum, sem að Stjörnustáli standa. BLIKK OG STÁL HF 0 Blikk og Stál hf. var stofnað 4. desember 1962. Fyrstu stjórn skipuðu Valdimar K. Jónsson, Garð- ar Erlendsson og Ólafur Á. Jóhannesson. Fyrir- tækið hóf starfsemi sína í 180 m2 húsnæði að Grensásvegi 18. Árið 1972 tók Blikk og Stál hf. þátt í þróunar- og skipulagskönnun og var út frá því ráðist í 58 byggingu iðnaðarhúsnæðis að Bíldshöfða 12, og er það 1050 m2. Árið 1973 tók fyrirtækið þátt í rekstrar- og stjórnunarnámskeiði er haldið var að tilhlutan Félags íslenskra iðnrekenda og Iðnþróunarsjóðs. Með aðstoð aðalkennara námskeiðsins frá Jydsk Teknologisk Institut á Jótlandi, Björns Jóhanns- sonar og Hagvangs lif., var rekstrareftirlitið, upp- lýsingasöfnun, bókhald og stjórnun endurskipu- lögð. í desember 1974 flutti Blikk og Stál hf. í liið nýja húsnæði að Bíldshöfða 12 og urðu þá þáttaskil hvað snertir aðstöðu og aðbúnað. Blikk og Stál hf. hlaut síðan viðurkenningu Félags blikksmiða fyrir góðan aðbúnað starfsfólks árið 1976. Starfsemi Blikk og Stál hf. er tvíþætt. Annars vegar sérsmíði úr galvaniseruðu járni, áli, eir og ryðfríu stáli til nýbygginga, mannvirkja og skipa, og Jiins vegar framleiðsla á loftliitunar- og blás- aratækjum, háspennu- og lágspennurofaskápum og rafkapalstigum svo eitthvað sé nefnt. Allt vör- ur sem áður voru eingöngu fluttar inn fullunnar. Verkeíni sem fyrirtækið hefur fengist við spanna allt landið og má nefna t. d. lofthitun og loftræstingu í eftirtalin hús: Vogaskóla, Réttar- holtsskóla, Breiðlioltsskóla, Fellaskóla, Langholts- skóla, Árnagarð, allt í Reykjavík, einnig í íisk- verkunarhús K.A.S.K. á Hornafirði, Heilsugæslu- stöð á Hornafirði, flugstöð á Egilsstöðum, Skinna- verksmiðjuna á Akureyri, sláturliús á Sauðár- króki, sláturhús á Blönduósi. Verkefni sem nú er fengist við er fyrir hús aldraðra við Lönguhlíð í Reykjavík, Húnavallaskóli svo eitthvað sé nefnt. Einnig er verið að hanna göturafskápa og viftu- hitara. Blikk og Stál er þátttakandi í Stjörnustáli lif. og hefur unnið að verkefni þess við Kröflu. TIMARIT IÐNAÐARMANNA

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.