Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 66
STÁLVER HF
Stálver hf. var stofnað í Reykjavík 1961 af
Kristmundi Sörlasyni. Rak hann Stálver sem
einkalyrirtæki fyrst í stað, eða þar til Pétur Sörla-
son gerist samstarfsmaður og meðeigandi. Var þá
fyrirtækið gert að sameignarfélagi (sf.). Það forrn
þótti þó ekki nógu gott, svo Stálver var breytt í
hlutafélag og er nú rekið í því formi. Var farið
hægt af stað í fyrstu eins og gengur hjá nýstofn-
uðum, peningalitlum fyrirtækjum. Unnu lijá fyr-
irtækinu fyrstu árin 8 til 14 manns.
Fyrsta aðsetur var að Bólstaðarhlíð 8 í Reykja-
vík, en fyrirtækið flutti nokkru seinna að Súðar-
vogi 40 og starfaði þar í mörg ár. Þar sem alltaf
þrengdist að starfseminni, var afráðið að flytja
hana inn á Ártúnshöfða í nýskipulagt hverfi, sem
að ýmissa dómi var talið mjög frambærilegt sem
verksmiðjuhverfi, en það var öðru nær. Skal nefnt
eitt dæmi um það hve rígbundið skipulagið var
hæðarkvótum: Það tók okkur mörg ár að fá hús-
ið hækkað það mikið að lofthæð þess væri not-
andi! En allt fór þó vel að lokum Joar sem vilji var
fyrir hendi af hálfu yfirvalda.
Stálver hf. hefur nú um 2000 m2 gólfrými og
4500 m2 malbikaða lóð.
Stálver hf. skipar 3ja rnanna stjórn og er hún
skipuð Jjannig: Kristmundur Sörlason formaður,
Pétur Sörlason og Sörli Hjálmarsson. — Fram-
kvæmdastjórn er Jiannig skipuð: Kristmundur
Sörlason sér um verklegan þátt fyrirtækisins,
samninga, tilboð og Jress háttar. Pétur Sörlason
sér um fjármál og innkaup. Þá sér Örn Baldvins-
son verkfræðingur um tæknideild og rannsóknir.
Framleiðslustjóri er Sigurður Sigurðsson. Yfir-
verkstjóri er Sigurður Gunnarsson. Verkstjóri í
heit-galvanhúðun, sandblæstri og málmhúðun er
Halldór Halldórsson. Skrifstofustjóri er Anna S.
Snæbjörnsdóttir.
Það má sjá á upptalningu {æssari, að fyrirtæk-
inu er skipt í margar deildir og hefur það reynst
mjög vel. Stjórnarfundir eru haldnir einu sinni í
viku og starfsmannafundir eru haldnir fyrsta
limmtudag í hverjum mánuði. Þar rnæta allir
starfsmenn fyrirtækisins, en þeir eru um 60 tals-
ins. Fundir þessir eru haldnir í kaffistofu fyrir-
tækisins undir lok vinnudags. Hafa Jreir gefið
góða raun.
Frá upphafi hefur Stálver hf. haft á stefnuskrá
sinni framleiðslu og liafa tveir þættir gengið í
gegnum árin. Annar er götuljósastólpar og alls
konar möstur. (Væri æskilegt að öll spennivirki
fyrir rafmagnsveitur væru einnig smíðuð hér á
landi, en það mun vel framkvæmanlegt). Hinn
þátturinn er í kring um sjávarútveginn. Þar má
telja framleiðslu á fisklöndunarmálum og haus-
skurðarvélum. Nú framleiðir fyrirtækið sjávarís-
vélina STÁLVER/SEAFARER, sem framleiðir
ís beint úr óblönduðum sjó. Framleiðsla á Jæssari
sjávarísvél hefur staðið í 3 ár og lofar góðu. Er
þetta talin ein besta sjávarísvél sem á markaðin-
um er í dag. Borist hafa fyrirspurnir um vél Jressa
víðsvegar að úr heiminum og væri spennandi að
reyna útflutning á þeim.
Stálver lif. hefur tekið þátt í mörgum stórfram-
kvæmdum, svo sem stækkun Kísiliðjunnar við
Mývatn, hitaveitulögnum, gufuveitum, ski]ja-
breytingum og almennri járnsmíði. En eins og
áður er sagt, hefur fyrirtækið einbeitt sér að
lramleiðslu og sú deild hefur af ýmsum ástæðum
mesta möguleika til stækkunar, svo framarlega að
iðnaðinum sé búin sú aðstaða að hann nái nægi-
legum J:>roska og sé samkeppnisfær við önnur
lönd.
Stálver hf. hefur sett upp heithúðunarstöð, sem
kostaði fullbúin um 64 millj. kr og breytir hún
allri lramleiðsluaðstöðu fyrir hvers konar stál-
iðnað.
Við hér í Stálver hf. höfum bjargfasta trú á ís-
lenskum iðnaði.
TÍ MARIT^IÐNAÐARMANNA
60