NT - 10.01.1985, Blaðsíða 24

NT - 10.01.1985, Blaðsíða 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT Síðumúli 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 a Þrótti - lokatölur 29*24 í Hafnarfirði í gærkvöldi ■ Hans Guðmundsson stckkur hátt í loft upp og lætur eitt af sínum frægu þrumuskotum ríða af. Skömmu seinna lá tuðran í netinu. Úr leik FH og Þróttar í gærkvöldi. NT-mynd: Ari Handknatt- leikur i.deild: Blikarnir lágu - fyrir Þór 22*17 í Vestmannaeyjum í gærkvöldi ■ Þór Vestmannaeyjum bætti stöðu sína í koinandi fallbaráttu við Breiðablik með sigri á heimavelli í gærkvöldi. Og það var einmitt Breiðablik sem var fórnarlambið. í frekar slökum leik sigraði Þór 22-17 eftir að leikurinn hafði verið nokkuð jafn þar til seinnipart- inn af seinni hálfleik. Þórarar skoruðu fyrsta mark- ið en jafnt var á öllum tölum þar til Breiðablik komst í 9-7. Þór skoraði þá 3 mörk í röð, 10-9 en staðan í hálfleik var 10-10. Strax í upphafi seinni hálf- leiks náði Þór forystunni með 2 mörkum og síðan náðu þeir 3 marka forystu 16-13. Blikar minnka muninn í 16- 15 en þá fór úr þeim vindurinn og Þór komst í 20-16. Breiða- blik skoraði 20-17 og spiluðu maður á mann í von um að stela boltanum og ná skyndi- Heimsmet á vindsæng? ■ Fríklúbbur Útsýnar efnir til nýstárlegrar keppni sunnudaginn 13. janúar. Keppt verður í boðsundi á vindsængum í Sundhöll Reykjavíkur. Keppnin hefst í Sundhöllinni kl. 14 á Sunnudaginn og er þátt- taka öllum heimil. Þátttak- endur verða þó að hufa náð 16 ára aldri. Vegleg verðlaun falla þeim í skaut er fær besta tímann á vindsænginni (ejn ferð fram og til bakaj. Verðlaunin eru ókeyjiis ferð með Útsýn og Frí- klúbbnum. Um leið og keppt verður í vindsængursundinu verð- ur sett heimsmet því aldrei hefur verið keppt í þessari grein fyrr. Aðgangseyrir fyrir áhorfendur verður 50 kr. og rennur til Jóns Páls Sigmarsson til að undir- búa hann fyrir keppn- ina: „Sterkasti maður heims.“ Keppendur láti skrá sig hjá Útsýn fyrir kl. 17 á föstudag í síma 26611. sóknum en það fór á annan veg en ætlað var því Þór skoraði 2 síðustu mörkin og vann 22-17 eins og áður sagði. Besti maðurinn í leiknum var Guðmundur Hrafnkelsson markvörður Blikanna en hann varði 21 skot. Sigmar Þröstur í Þórsmarkinu lék einnig ágæt- lega, varði 13 skot. Aðrir Þór- arar voru svipaðir að getu. Mörkin skoruðu: Fyrir Þór: Sigbjörn, Páll, Elías, Gylfi, Óskar og Sigurður (3 víti) 3 Enski bikarinn: Forest og Luton áfram ■ Nottingham Forest vann í gærkvöldi aðra viðureign sína gegn Newcastle í enska bikarn- um 3-1 og leikur því gegn Wimbledon á heimavelli í 4. umferð. Luton og Stoke léku einnig sinn leik og sigraði Luton 3-2 og leikur í 4. umferð gegn Wolves eða Huddersfield. Það ættu því að vera góðir möguleikar hjá þessum liðum að komast áfram í 5. umferð. Lcik Tottenham og Charlton var frestað til 14. janúar svo menn verða að bíða enn um stund eftir því að fá það endan- lega á hreint hvort Liverpool og Tottenham eigast viö á An- ficld í 4. umferö. hver, Herbert 2 og Steinar 1. Fyrir UBK: Jón Þór 4, Þórð- ur 4, Björn 4, Kristján H. 3, Aðalsteinn og Alexander 1 hvor. ■ Þór fór eins og marga grun- aði með leik FH og Þróttar í Hafnarfiröi í gærkvöldi. FH vann öruggan sigur og í raun- inni var aldrei spurning hvort liðið myndi bera sigur úr bítum eftir miðjan fyrri hálfleik. En í lokin stóðu FH-ingar uppi með 5 marka sigur, 29-24. Leikurinn var jafn í byrjun og jafnt á öllum tölum upp í 7-7. Þá skoruðu FH-ingar 3 mörk í röð og komust mest í 4 markaforystu, 12-8 fyrir leikhlé en Þróttur minnkaði þann mun um eitt mark og staðan þegar flautað var til hvíldar 16-13 FH í vil. Þróttarar byrjuðu seinni hálfleik með látum, skoruðu 4 á móti 2 og staðan allt í einu orðin 18-17 eftir 7 mínútur. En þá virtist sem hleypt væri úr slöngunni hjá Þrótti og þeir keyrðu á felgunni það sem eftir var. FH skoraði 3 mörk í röð og náði: aftur öruggri forystu, 20- 17. Síðan sáust tölur eins og 24-20, 26-22 og mestur varð munurinn 6 mörk 29-23. Þrótt- ur skoraði síðasta markið og lokatölurnar urðu 29-24. Hjá Þrótti stóðu tveir leik- nienn upp úr, þeir Páll Ólafsson og Guðmundur A. Jónsson, markvörður. Guðmundur varði hvorki meira né minna en 21 skot og 14 sinnum fengu Þróttarar boltann úr því. Páll skoraði 11 mörk í leiknum og þar af 7 í seinni hálfleik þegar hann var tekinn úr umferð. Það háði Þrótturum að Konráð Jónsson gat lítið verið með vegna meiðsla sem hann hlaut í síðasta leik og því var lítil ógnun, fyrir utan Pál í sókn- inni. Hjá FH voru margirsvipaðir, þeir Hans, Kristján og Valgarð léku allir vel og Valgarð var sérlega góður í vörninni. Haraldur varði þokkalega og reyndar Sverrir líka þegar hann var inná. Mörkin í leiknum skoruðu þessir: Fyrir FH: Hans 9, Kristján 8 (3), Valgarð 5, Þorgils, Guðjón Árnason og Guðjón Guð- mundsson 2 hver og Jón Erling . 1. Fyrir Þrótt: Páll 11, Gísli 5, Birgir 4, Sverrir 3 og Konráð 1. Ulrike Meyfarth fékk tilboð frá Penthouse: „Ég er ekkert lostaleikfang“ ■ Stuttu eftir að Ulrike Meyfaríh, Vestur-Þjóðverj- inn frægijiafði unnið gullið í hástökki kvenna á ÓL í Los Angeles í suntar fékk hún tiiboð sem hún reyndar gat hafnað. Svoleiðis var að „karl- rembutímaritið“ Pent-1 housc bauð henni 200.000 þýsk mörk fyrir að fá að taka nektarmyndir af lienni og birta þær síðan. Mcyfarth sagði þvert nci en Penthousemcnn virðast hafa misskilið þessa neitun því þeir spurðu hvort hún vildi meiri peninga fyrir myndaröðina. Ulrike Meyfarthsvaraði: „Nei, engir peningar í ver- öldinni geta talið mér „lostaleikfang", sagði hún hughvarf. Ég er ekkert og sneri upp á sig. Ulrike Meyfarth: „Engar nektarmyndir takk“. Oruggur

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.